ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér. Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann um þessa svokölluðu armslengd, orð sem maður lærði hér. Ég hafði nú aldrei nýtt það orð, armslengd, en ég lærði það hér eftir að ég kom inn á Alþingi að þessi armslengd væri til staðar, þ.e. armslengd á milli ráðherra og þeirrar stofnunar sem sæi um að selja eignir ríkisins. Að sú stofnun væri fyrst og fremst hugsuð til þess að halda pólitísku, ja, hvað eigum við að segja, einhverjum klíkuskap við sölu eigna ríkisins. Ég var samtíða hv. þingmanni í fjárlaganefnd þegar Bankasýslan kynnti fyrir okkur þessa sölu og við vitum auðvitað hvernig það fór allt saman. Er Bankasýsla eða stofnun sem sér um eignir ríkisins af hinu slæma eða á þetta allt að vera á borði ráðherra? Eða voru það bara óhæfir starfsmenn Bankasýslunnar sem ollu því að þetta fór allt í skrúfuna á sínum tíma? Í staðinn fyrir að leggja niður Bankasýsluna, hefði þá ekki verið eðlilegra að segja þessum starfsmönnum upp?