154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[22:01]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta efh.- og viðskn. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Já, það er merkilegt hvernig er búið að fara með þetta hugtak, armslengdina, og það er búið að rangtúlka hana og snúa út úr henni á alla vegu. Armslengdin kemur ekki í veg fyrir ábyrgð ráðherra. Það er það sem hefur verið reynt að segja, að af því að það ætti að vera armslengd þá bæri ráðherra enga ábyrgð. Það virkar ekki þannig. Það virkar þannig að ráðherra skiptir sér ekki af ákveðnum framkvæmdaratriðum, útfærsluatriðum, á einn eða annan hátt, undirbúningsatriðum og þess háttar, heldur gefi bara almennar leiðbeiningar og almennar reglur um það hvaða markmiðum eigi að ná o.s.frv. og svo er nánari tæknileg og fagleg útfærsla í höndum faglegrar stofnunar. Ég tel það vera góða útfærslu.

Síðan á þessi faglega stofnun að afhenda ráðherra allt sem var gert og ráðherra rýnir það eins og ráðherra hefði verið að gera þetta sjálfur og segir þá: Fyrirgefðu, ég hefði gert þetta öðruvísi. Af hverju gerið þið þetta? og fær þá svör og spurningar og alls konar svoleiðis í kringum það og kvittar síðan upp á: Já, ég sem ráðherra votta að þetta var vel gert og tek þar með ákvörðun um að þetta sé allt eins og ég hefði gert upp á mína ábyrgð.

Þetta er gott fyrirkomulag. Þetta býr til samtal og skjalaslóð um það hvernig ákvarðanir eru teknar. Ég tel það vera afskaplega slæmt þegar verið er að færa þetta til ráðherra. Vandinn er, eins og hefur komið fram, að reynt hefur verið að kenna Bankasýslunni um lélega framkvæmd. Ég held að það sé alveg rétt, en þá er það ekki fyrirkomulaginu að kenna heldur einmitt þeim sem framkvæma samkvæmt fyrirkomulaginu. Þarna er vandinn sem fólk áttar sig oft ekki á, að báðir aðilar geta klúðrað, ekki bara annar.