154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[22:04]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Annað sem mig langar að velta upp í seinna andsvari eru markaðsaðstæður til að selja, sem ég nefndi í ræðunni hér áðan. Mér finnast þær ekki vera góðar til sölu á fjármálafyrirtæki við þessar aðstæður. Hv. þingmaður nefndi það í sinni ræðu hér að í frumútboðinu hafi verið selt á of lágu verði og að ríkissjóður hafi orðið af verulegum tekjum þess vegna. Við vitum um markaðsverðið eins og það var í síðustu sölu, dagsgengið þá var 122 en það var selt á 117. Nú er verið að tala um að dagsgengið sé 96 og svo er talað um einhver 5% frávik. Þá gæti fólk hugsanlega verið að kaupa á 92. Ef maður skoðar þá töluna 92 upp í 122 kr. þá er náttúrlega orðið verulegt bil þar á milli. Telur hv. þingmaður ekki rétt að við bíðum? Ég held að aðgengi fyrir ríkissjóð að fjármagni sé bara nægjanlegt. Ég vil bara benda á ÍL-sjóð í því sambandi. Ríkissjóður skuldar ÍL-sjóði verulega fjármuni og hefur verið að ganga á eignir ÍL-sjóðs til að reka sig. Ég held að við það að bíða gætum við hækkað gengi bankans um 20–30% á einhverju tímabili, sem er jú margfalt meira en þeir vextir sem þyrfti að greiða af láni til þess tíma sem við gætum selt á. Telur hv. þingmaður ekki rétt að bíða með söluna þar til að hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér á nýjan leik?