ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðbrandur Einarsson hefur gert í stórum dráttum mjög vel grein fyrir afstöðu okkar í Viðreisn gagnvart þessu máli og því sem við viljum sérstaklega að verði litið til. Ég vil undirstrika að við í Viðreisn teljum í grunninn mikilvægt að það verði losað um eignarhald ríkisins á Íslandsbanka en eftir þetta kannski má segja ævintýralegt klúður ríkisstjórnarinnar á fyrri stigum þessa kjörtímabils þá auðvitað verðum við að hafa varann á og spyrja okkur eðlilega spurninga um það hvað það þýðir að selja og hvernig við eigum að gera það. Við höfum lagt á það skýra áherslu allt frá upphafi, og stutt söluna, að söluandvirðið á Íslandsbanka verði m.a. að fullu notað til að greiða niður skuldir og/eða fara í markvissa fjárfestingu en ekki það sem þessi ríkisstjórn virðist ætla að gera. Kannski er hluti af því sem er m.a. til að vara okkur við að það er ekki alveg skýrt hvernig hún ætlar að ráðstafa þessu söluandvirði en er að það fari annars vegar í þessar fjárfestingar og hins vegar að greiða niður skuldir.
Hv. þm. Guðbrandur Einarsson dró mjög vel fram mjög skýrar og snarpar og skarpar athugasemdir, m.a. frá Seðlabanka Íslands. Þær athugasemdir var ekki farið nægilega vel yfir af því að það sem ég staldra við líka er að þetta virðist vera gripið, það á bara að selja sama hvað, bara til þess að geta hakað í boxin út frá ákveðnum hugsjónum, sem eru virðingarverðar af því ég deili þeim hugsjónum að því leyti að ríkið eigi ekki að festa fjármagn sitt í því sem við erum með í bönkunum. Við eigum frekar að nota það í aðra þætti. Við í Viðreisn höfum stutt þessar hugmyndir um sölu á hlut ríkisins á Íslandsbanka en við lögðum jafnframt ríka áherslu á sínum tíma núna fyrr á kjörtímabilinu á það að ríkið verði kjölfestufjárfestir í einum banka og að gegnsæi myndi ríkja við sölu hlutarins í Íslandsbanka. Þetta sögðum við þá og reynslunni ríkari ætlum við að undirstrika enn frekar þessa kröfu okkar, brennd af síðustu sölu og því líka sem ég ætla að vera alveg einlæg með: Við eigum að læra almennt af sögu síðustu 20 ára og um leið og við segjum að við styðjum frjálsan markað, við styðjum það að einkafjármagnið fái aðgang að því að fjárfesta í bönkum, þá skiptir máli hvernig að því er staðið, hvernig það er gert, hvert markmiðið er. Að hluta til er það m.a. það sem stendur í athugasemdum frá Samtökum atvinnulífsins, sem ég tek heils hugar undir. Þar segir m.a. að samtökin hafi bent á að það sé mikilvægt að almennur stuðningur ríki við framkvæmd útboðs ríkiseigna, að skilningur sé á því hvers vegna farið sé í slíka vegferð og með hvaða hætti. Þetta er algjört lykilatriði í okkar huga í Viðreisn af því að um leið og Samtök atvinnulífsins draga það m.a. fram þá skiptir ekki síður máli sjónarmiðið — þó að fjárhagslegi mælikvarðinn skipti líka mjög miklu máli — um jafnræði og gagnsæi. Það vegur þungt þegar kemur að sölu eigna í eigu almennings. Þess vegna þurfum við í þessu skrefi að staldra við í ljósi sögunnar og spyrja okkur gagnrýninna spurninga: Er þetta leiðin til þess að byggja undir traust og trúverðugleika úti í samfélaginu? Við þurfum að stíga varlega til jarðar. Við þurfum að fara líka betur með fjármagn. Ríkissjóður eftir þessa ríkisstjórn er vissulega að skila halla eftir hana væntanlega 11 ár í röð. Auðvitað þurfum við fjármagn til að rétta af ríkissjóð, til að greiða niður skuldir, en ég styð ekki mál sem fer í það að setja fjármagn úr sölunni m.a. í það að brúa bilið í rekstri ríkissjóðs. Þetta verða að vera einskiptisráðstafanir í fjárfestingar eða það að greiða niður skuldir.
Ég vil draga fram það sem mér fannst mjög mikilsvert að hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom inn á og það eru samkeppnismálin. Samkeppniseftirlitið dró fram mjög mikilvæga punkta um það hverjir ættu að geta keypt og séu heppilegir til að kaupa og það verður að gæta að ýmsum sjónarmiðum þar, m.a. að stefna að fjölbreyttu eignarhaldi aðila sem eru líklegir til að hafa að leiðarljósi langtímahagsmuni af traustum bankarekstri, að kaupendur að stórum hluta Íslandsbanka eigi ekki jafnframt að vera með hluti í keppinautum bankans og séu heldur ekki umsvifamiklir viðskiptavinir bankanna. Þarna komum við einmitt að því sem leiðir okkur að því hvað það skiptir máli að það sé aukin samkeppni á bankamarkaði, að það sé frjálst flæði m.a. erlends fjármagns til að fjárfesta í íslenskum fjármálageira og tryggingageira og það kom m.a. í ljós í nýlegri könnun IMD varðandi samkeppnishæfni Íslands að við föllum niður m.a. af því að og ekki síst vegna þess að það eru ekki erlendar fjárfestingar að koma hingað til landsins. Af hverju skyldi það nú vera? Það vantar hér stöðugan gjaldmiðil þannig að við getum byggt undir traust og gegnsætt efnahagslíf og um leið banka sem eru með öflugan grunn sem traust ríkir til. Hvað er ég með þessu líka að segja? Það sem ég vil benda á er að við erum með félagslegt fjármagn í gegnum lífeyrissjóðina sem eru með stærsta eignarhaldið á bönkunum. Það er ekki umkvörtunarefnið, lífeyrissjóðirnir eru traustir eigendur alveg eins og ríkissjóður getur verið það. En vandinn er að þetta félagslega eignarhald á bönkunum er allt of einhæft og það eru ekki miklar líkur á að það leiði af sér aukna samkeppni.
Það er líka vafasamt að bankarnir, og þá komum við að athugasemdum Samkeppniseftirlitsins, séu að stærstum hluta í eigu lífeyrissjóða. Gott og vel, en á sama tíma eru lífeyrissjóðirnir stærstu eigendur stærstu fyrirtækjanna í landinu. Hér fer ekki saman hljóð og mynd hjá ríkisstjórn sem ég hefði vonað að myndi byggja undir samkeppnishæft atvinnulíf, frjálsan markað en ekki fákeppni. Það er það sem er hættan m.a. við þetta skref núna meðan umhverfið er svona. Það er ekki búið að koma skikki á stóra regluverkið sem er m.a. gjaldmiðillinn, en líka það að ríkisstjórnin hefur ekki farið inn í umsögn Seðlabankans, heldur ekki inn í umsögn Samkeppniseftirlitsins, hvernig ríkisstjórnin, fyrst hún vill púkka enn upp á íslensku krónuna, ætlar að tryggja raunverulega samkeppni á bankamarkaði. En við erum búin að upplifa það ítrekað hjá þessari ríkisstjórn í hverju málinu á fætur öðru að henni er nokk sama þegar kemur að neytendavernd, henni er nokk sama þegar kemur að því að taka öll tæki og tól til þess að ýta undir samkeppni á markaði. Þá er svo mikilvægt að við höfum öfluga og fjölbreytta bankastarfsemi þannig að það verði þessi raunverulega samkeppni sem getur m.a. stuðlað að því, með stöðugum gjaldmiðli, að fólkið okkar í landinu sé ekki að borga tvisvar til þrisvar sinnum hærri vexti í húsnæðislán og önnur lán en þær nágrannaþjóðir sem við viljum bera okkur saman við.
Þannig að auðvitað verðum við í stóru myndinni að tala um það að til þess að auka samkeppni á fjármálamarkaði þá verðum við einfaldlega að taka upp evru. Þetta er snúið því að Seðlabankinn hefur m.a. takmarkað mjög erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna og það veikir um leið samkeppnisumhverfi. Lífeyrissjóðirnir hafa ekki um auðugan garð að gresja til að fjárfesta í íslensku atvinnulífi þannig að við erum komin í ákveðinn vítahring sem endar með því að fákeppni magnast upp og á hverjum bitnar það? Á íslensku samfélagi, íslenskum heimilum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem enn og aftur eru föst í krónuhagkerfinu og geta sig hvergi hreyft. Þegar kemur að þessu máli styðjum við í Viðreisn það að það verði aukið einkafjármagn á bankamarkaði. (Forseti hringir.) Við styðjum það að ríkið sé kjölfestufjárfestir í einum banka (Forseti hringir.) en við styðjum það líka að það verði farið varlega í frekari sölu meðan það er ekki farið betur ofan í mjög alvarlegar athugasemdir bæði Samkeppniseftirlitsins og Seðlabanka Íslands.