154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:19]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða, um veiðistjórn grásleppu. Það er nú þannig í þessu máli, sem er svolítið sérstakt, að þetta er mál sem atvinnuveganefnd flytur sjálf, þ.e. þetta er ekki þingmannamál og þetta er ekki mál sem kemur úr ráðuneyti þessarar ríkisstjórnar, þannig að ég tel að við séum núna að fara í ákveðna vegferð sem er tiltölulega óvanaleg. Þetta mál á sér þó töluverða sögu. Það eru um sex ár síðan þáverandi atvinnuvegaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, fór af stað í þessa vinnu og málið hefur ekki, ef ég fer rétt með, frú forseti, komið hér inn í þingsal. Við erum í þessu samhengi að koma í fyrsta skipti málinu inn í salinn til umræðu. Það hefur verið mælt fyrir því í upphafi en nú erum við komin í 2. umræðu. Það var á síðasta löggjafarþingi sem hæstv. matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, lagði þetta mál fram og það fékk umfjöllun í hv. atvinnuveganefnd og var málið afgreitt úr henni en fékk ekki framgang eftir það. En hér erum við komin og því ber að fagna.

Það er þannig að við erum með veiðistýringu á öllu sem viðkemur sjávarnytjum hér á landi og þetta er sú tegund sem hefur hingað til ekki verið í aflamarki heldur hafa verið hér frjálsar veiðar, þ.e. viðkomandi aðilar hafa sótt um leyfi og síðan gefur ráðherra út vissa daga sem menn nýta sér og þá hafa menn farið til veiða. Þegar við fjöllum um breytingar á lögum sem snúa að veiðum úr okkar auðlind er óhætt að segja að skiptar skoðanir séu um málið og það er ekkert öðruvísi í þessu máli. Það er alveg óhætt að segja að það séu verulega skiptar skoðanir, (Gripið fram í: Nei.) hvort sem það er meðal þingmanna, almennings eða þeirra sem að þessu koma. Það verður að segjast eins og er að meðal þeirra sjómanna sem þetta stunda er mikill meiri hluti fyrir því að fara þá leið að grásleppa, hrognkelsi öðru nafni, sem er svona virðulegra nafn, verði sett í kvóta.

Nefndin hefur fjallað um málið í vetur og fengið til sín gesti og auk þess tekið við umsögnum um málið. Það bárust einhverjar 24 umsagnir um málið og þær eru aðgengilegar á vef Alþingis. Auk þess fengum við töluvert marga gesti til okkar sem fjölluðu um málið og ég ætla nú að fara lauslega yfir þetta, frú forseti, innihald þessa máls. Við erum við þessa hlutdeildarsetningu að horfa til ákveðinnar svæðaskiptingar sem er ágætlega farið í, bæði í frumvarpinu sem slíku og í nefndaráliti. Við erum að setja ákveðnar skorður varðandi skiptingu á milli svæða, þá aðila sem eru á svæðunum o.s.frv. Það er t.d. þannig að þú getur ekki selt þinn hlut eða kvóta sem þér er úthlutað af því svæði sem þú færð úthlutun á. Sömuleiðis erum við að tala um stærðarmörk í kvótanum, þ.e. þú ert með 1,5% af útgefnu heildaraflamarki sem er hámarkið sem hver og einn aðili getur verið með. Í dag er það þannig að sá sem hefur veitt hvað mest og er með hæsta aflahlutdeild við þessar veiðar er með 1,2% og aðrir hafa minna. Þegar svona er farið af stað þurfum við alltaf að meta af hverju við eigum að fara þessa leið. Hvað gerist síðan í kjölfarið? Erum við að horfa til þess að við munum sjá þetta safnast saman á fáar hendur? Munum við sjá stórútgerðina fara hér massíft í grásleppuveiðar? Tíminn einn verður að skera úr um það.

Ég minni á að það eru líka stærðarmörk á þeim bátum sem geta stundað þessar veiðar. Í þessu frumvarpi erum við að tala um 15 brúttótonn að hámarki á bát sem stundar þessar veiðar. Við vitum líka, þeir sem eitthvað hafa komið nálægt þessum veiðum, að það er virkilega óhagkvæmt að stunda þessar veiðar á stærri skipum. Við erum að horfa til þess að það verði gefinn ákveðinn fyrirsjáanleiki við veiðarnar, að hver aðili hafi visst magn sem hann getur veitt hverju sinni. Eftir því hefur verið kallað. Við þekkjum það að undanfarin ár hafa verið gefnir út ákveðnir dagar ár hvert og síðan hafa menn haldið til veiða. Síðan hefur þetta endalausa hringl verið fram og til baka. Það er verið að bæta við dögum. Jafnvel hafa sumir verið farnir á sjó, það hefur verið gríðarlega góð veiði. Aðrir hafa beðið vegna þess að það er ekki á sama tíma sem grásleppan gengur að landinu hvort eð er. Á Norðurlandi gengur hún fyrr upp að landinu, á Vesturlandi mun seinna. Árið 2020 var það t.d. þannig að þegar sjómenn á Vesturlandi ætluðu að leggja úr höfn þá var bara sagt: Stopp, þið farið ekkert af stað vegna þess að það er búið að veiða það aflamark sem í boði er í þetta skiptið. Þetta er eitt af því sem sjómenn, útvegsmenn, hafa kallað eftir, sá fyrirsjáanleiki að geta gengið að því vísu hvað menn geta veitt hverju sinni og á hvaða tíma sem það hentar mönnum að fara til veiða. Það er mjög breytilegt milli landsvæða og sömuleiðis er það árstíðabundið hvenær grásleppan gengur að landi til þess að hægt sé að veiða hana.

Frú forseti. Það má alveg velta því fyrir sér hvort þetta sé nauðsynlegt að gera. Það eru væntanlega skiptar skoðanir um það en mín skoðun og flutningsmanna þessa frumvarps er klárlega sú að það sé nauðsynlegt að fara þessa leið. Og af hverju er það þannig? Jú, þrátt fyrir það að veiðar hér séu bundnar ákveðnum dögum, það er ákveðið leyfi, þá hafa rekstrarforsendur fyrir því að gera út á grásleppu verið það ótryggar að nýliðar hafa í mjög litlum mæli komið til leiks. Þegar við förum að skoða þau gögn sem liggja að baki veiðum undanfarinna ára þá eru alltaf færri og færri aðilar sem stunda þessa veiði. Þá geta menn svo sem spurt sig: Kemur kvótasetning á grásleppu til með að breyta því, koma fleiri til með að stunda það? Eins og ég sagði áðan þarf tíminn að leiða það í ljós en það sem gerist er að þú hefur eitthvað fyrir framan þig sem þú getur unnið út frá, þú hefur ákveðið magn sömuleiðis sem þú ert að vinna með, þú getur velt því fyrir þér í hvaða fjárfestingu þú ert að fara o.s.frv., þannig að fyrirsjáanleikinn er númer eitt, tvö og þrjú. Það á líka við um vinnslurnar sem við þessum hrognum taka. Það er mjög erfitt að leggja af stað í leiðangur og þú veist ekkert hvað er fram undan, ekki neitt. Er ég að fá til mín á morgun 60–70 tonn eða fæ ég bara 10? Þetta er það sem vinnsluaðilar hafa staðið frammi fyrir í mörg ár og hafa bent á, þú verður að hafa fyrirsjáanleika til að geta hámarkað arðinn af því sem þú ert að gera. Það er akkúrat það sem er málið í dag, það hefur vantað verulega upp á það og við því er verið að reyna að bregðast í þessu frumvarpi.

Þegar kemur að úthlutun á þessum aflaheimildum, heildaraflamarki, þá horfum við til viðmiðunarára í þessu samhengi. Í upphaflega frumvarpinu sem lagt var af stað með í fyrra var gert ráð fyrir því að þetta væri frá árinu 2014, þá væri farið af stað, en meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til að við horfum til ársins 2018 sem fyrsta ársins. Við undanskiljum að vísu árið 2020 vegna þess að þá voru uppi mjög sérstakar aðstæður. Eins og ég kom inn á fyrr í minni ræðu þá var það þannig þegar sjómenn á Vesturlandi ætluðu að leggja úr höfn að veiðar voru stöðvaðar vegna þess að þá var búið að veiða það mikið magn fyrir Norðurlandi. Þar af leiðandi kemur það ekki til viðmiðunar, árið 2020. En við erum að horfa til þeirra ára, 2018–2022, en að árið 2020 verði undanskilið.

Það er líka mjög mikilvægt að þessi veiðiskapur er ansi kvikur og það getur brugðið til beggja vona varðandi það. Við erum ekki með veiðiskyldu. Við leggjum ekki til að það verði veiðiskylda en að ráðherra verði heimilt með reglugerð að undanskilja grásleppu frá ákvæði um veiðiskyldu ef aðstæður á markaði leiða til þess að aflinn er of lítill o.s.frv. Það er mjög mikilvægt vegna þess að við höfum séð það að sum ár hafa algerlega brugðist og sum ár hafa verið virkilega góð, þannig að það þarf að vera ákveðinn sveigjanleiki hvað þetta varðar.

Frú forseti. Grásleppa veiðist líka sem meðafli á stærri skipum, sérstaklega hvað varðar uppsjávarskipin, og meiri hluti nefndarinnar leggur hér til að ráðherra verði heimilt í reglugerð að útfæra með hvaða hætti verði farið með grásleppu sem meðafla við aðrar veiðar. Við þekkjum það alveg að undanfarin ár hefur grásleppa verið mjög mikið að koma með t.d. þegar er verið að veiða loðnu eða annan uppsjávarfisk í nót. Sömuleiðis getur þetta verið þegar við erum með botntroll og annað hjá okkur. Þetta þarf allt að koma til og ráðherra er falið það verkefni að útfæra það með nánari breytingum.

Við erum við gildistöku á þessu frumvarpi að horfa til þess að það taki gildi á nýju fiskveiðiári, þ.e. í september 2024. Ég vil vekja athygli hv. þingmanna sem hér ætla að koma í ræður eða andsvör á eftir á því að kynna sér svæðaskiptinguna sem er mjög mikilvæg hvað þetta varðar, hvernig við horfum til þess, vegna þess að við gerum ákveðnar breytingar í þessu samhengi miðað við það sem upp var lagt með í upphafi.

Það verður að segjast eins og er að það hefur verið áhugavert og krefjandi að takast á við það að fara í gegnum þetta og það er eins og oft er þegar við horfum til breytinga, hvort sem það er í landbúnaði eða sjávarútvegi, að þá eru yfirleitt mjög stuttar boðleiðir til þingmanna frá hvort sem er bændum eða sjómönnum sem segja sína skoðun á hlutunum. Ég tel að við höfum reynt að feta þann veg að reyna að hlusta og við höfum gert það, við höfum hlustað. Við höfum farið að tillögum t.d. deildar sem er innan Landssambands smábátaeigenda sem grásleppusjómenn tilheyra, horft til þeirra tillagna sem þeir lögðu til varðandi þessa svæðaskiptingu, því að hún er mjög mikilvæg í þessu ljósi varðandi þróun greinarinnar o.s.frv.

En það er eitt mjög mikilvægt atriði sem ég hef ekki komið inn á sem snýr að nýliðun í þessari atvinnugrein. Hér er lagt til að það verði 5,3% árlega af heildaraflamarki sem ráðherra verði heimilt að úthluta til nýliða. 5,3% er ansi mikið af heildaraflamarki og ég kom inn á það áðan að við erum að tala um að hámarkshlutdeild í heildaraflamarki er 1,5% þannig að nýliði sem vill hefja rekstur og grásleppuútgerð á greiðan aðgang þarna inn. Hann þarf ekki að kaupa sig inn í greinina nema hann vilji en þessi pottur er til staðar. Við horfum á það og tölurnar sýna það alveg svart á hvítu að nýliðun er eitthvað sem vart þekkist í þessari atvinnugrein og ef ekkert verður að gert til þess að reyna að treysta rekstrargrundvöll þessarar atvinnugreinar þá leggst hún bara af fyrir rest, það liggur alveg fyrir. Þetta er eins og með allt annað í okkar samfélagi að tíminn hleypur ekkert frá okkur, hann er fram undan. En það sem búið er — við þurfum að horfa líka til baka: Getum við gert hlutina á annan hátt? Ég tel að með þessu frumvarpi séum við að stíga ákveðið skref, rétt skref til þess að treysta stoðir þessarar atvinnugreinar, sem er mikilvæg atvinnugrein mjög víða um landið í hinum dreifðu byggðum, vegna þess að fyrirsjáanleiki í öllum rekstri er það sem við þurfum að hafa fyrir framan okkur og það er akkúrat það sem meiri hluti atvinnuveganefndar leggur hér til.

Frú forseti. Undir þetta nefndarálit skrifar sá sem hér stendur, Þórarinn Ingi Pétursson, og hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Óli Björn Kárason.

Ég held að ég láti þetta gott heita. Ég reikna með því að það verði líflegar umræður hér í kjölfarið á þessari framsögu. Ég ítreka bara að við verðum alltaf að horfa til þess að allt getur breyst með tímanum og þetta er eina tegundin sem við erum ekki komin með í aflamark. Allt annað er í aflamarki, meira að segja strandveiðin er í aflamarki. Það er heildarpottur sem veitt er úr og það á við um þetta líka. Strandveiðin er svo sem annað sem við þurfum hvort eð er að velta fyrir okkur í framhaldinu en það er ekki til umræðu í dag. Í dag erum við að fjalla um veiðar á grásleppu, hvernig við getum þróað þær áfram til þess að þær skili sem mestum hagnaði og hvernig við náum að hagræða í þessari grein til þess að þeir sem hana stunda hafi eitthvað út úr því. Sömuleiðis að það verði ákjósanlegt að fara inn í þessa grein, en það hefur bara ekki verið þannig. Ég læt þetta gott heita.