154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurningarnar sömuleiðis. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir og hv. þingmaður sat nú hér allan tímann inni í sal þegar ég flutti mína ræðu. Það kom alveg skýrt fram, hv. þingmaður, hvað þetta varðar sem snýr að veiðiskyldunni. Það var ágætlega farið yfir hana. Til hvers er verið að gefa afslátt af veiðiskyldu? Það er vegna sérstakra aðstæðna, hvort sem það er hrun á markaði eða að grásleppuveiði er ekki þetta árið. Þess vegna er ekki skylda að veiða. Þá hefur greinin ekkert með það að gera að hleypa einhverjum öðrum að. (EÁ: Nú má veiða.) Þegar ekkert veiðist þá þýðir ekki að setja einhvern annan á sjó til að reyna að veiða. Það liggur alveg fyrir. Það er mjög augljóst.

Það er nú einu sinni þannig að fyrirsjáanleiki í rekstri er alltaf það sem við þurfum að hafa fyrir framan okkur. Hann hefur ekki verið til staðar og það hafa þeir aðilar sem þessar veiðar stunda bent á trekk í trekk. Það er engin tilviljun að leitað hafi verið eftir því undanfarin sex ár að fara þessa leið og tölurnar sýna okkur það. Þrátt fyrir allt þetta eins og staðan er í dag, þ.e. að þetta er bara frjálst, þú þarft að hafa leyfi til að stunda veiðarnar, þá fækkar alltaf þeim sem stunda þær. Hvers vegna? Vegna þess að það er enginn arður af því.

(Forseti hringir.) Ef ég man rétt var ein spurningin sem sneri að framsali innan svæðis og ég kem að því í seinna svari.