154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni, Þórarni Inga Péturssyni, fyrir andsvarið. Ef ég væri að flytja mál um að þetta kvótakerfi á grásleppu væri að brjóta stjórnarskrána þá myndi ég lesa upp ræðu hv. þingmanns, ég myndi lesa upp framsöguræðu hans og segja að þetta væru ekki almannahagsmunir. Ef þú stofnar pítsaverksmiðju eða bar, hver er fyrirsjáanleikinn um hvort þú lifir af eða ekki? Hann er undir þér sjálfum kominn. Það er nákvæmlega sama með sjómennina, fyrirsjáanleiki í atvinnulífinu er undir atvinnurekandanum sjálfum kominn, hæfileikum hans. Það að ríkisvaldið sé að fara að skapa fyrirsjáanleika í veiðum með kvóta er algerlega út í hött. Þetta stenst ekki neitt. Þið að skapa þetta, ríkisvaldið — af hverju gerið þið þetta ekki í öllum atvinnugreinum landsins, að skapa fyrirsjáanleika? Málið er að rökin sem eru færð fyrir kvótasetningu grásleppu standast ekki atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Af hverju? Af því að það eru ekki almannahagsmunir. Það er ekki verið að vernda fiskstofna. Ég get minnt hv. þingmann á það að árið 1983 þegar kvótasetningin á þorski var tekin upp var það til að vernda fiskstofna. Rökin fyrir kvótasetningu fiskveiðistjórnarkerfisins er vernd fiskstofna, vísindalegar rannsóknir Hafró. Það er ekki búið að minnast einu orði á Hafró hérna í kvöld, ekki einu. Það eru engin rök fyrir kvótasetningu nema að ákall er úr greininni um að þeir vilji eignast kvótann og málið búið. Það er málið. Þegar talað er um að það sé engin nýliðun og það verði meiri nýliðun við kvótasetningu þá er verið að snúa hlutunum á hvolf. Kvótasetning kemur í veg fyrir nýliðun. Ég veit að það er ákvæði þarna inni sem heimilar kvótasetningu, en ég spyr aftur: Hver eru rökin fyrir því að heimila framsal innan veiðisvæða? Þau eru ekki til staðar. Hver eru rökin fyrir því? Það er alveg kristaltært að þau eru ekki til staðar og það er ánægjulegt (Forseti hringir.) að hv. þingmaður skuli tala sig inn í stjórnarskrárbrot, vegna þess að hverjir eru almannahagsmunirnir? (Forseti hringir.) Aftur, fyrirsjáanleiki í atvinnurekstri er ekki almannahagsmunir.