154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi almannahagsmuni þá hlýtur það alltaf að vega þyngst að þú hafir einhvern arð af því sem þú ert að gera. (Gripið fram í.) — Hv. þingmaður, nú hef ég orðið. Hér er vitnað í stjórnarskrárbrot og almannahagsmuni og ég veit ekki hvað. Það er ekkert nýtt hjá þessari þjóð að við séum með aflahlutdeild varðandi nýtingu nytjastofna hringinn í kringum landið. Þetta er eina tegundin sem er eftir. Hv. þingmaður veltir fyrir sér af hverju þurfi að vera hægt að skipta aflaheimildum innan svæðis. Jú, það er hámark. Segjum sem svo að aðili fái úthlutað 0,5% af heildaraflamarkinu. Við hliðina á honum er aðili sem er sömuleiðis með 0,5%. Viðkomandi aðili vill fara út úr greininni, bara eins og gengur og gerist. Þá er eðlilegt að þessir aðilar geti átt viðskipti með aflaheimildir. En við bindum alla við svæði — við erum ekki að tala um það að Guggan verði áfram gul eða blá eða hvað það er, við erum að binda við ákveðin svæði þar sem ákveðin aflahlutdeild er gefin út miðað við veiðireynslu undangenginna ára frá árinu 2018. Svo einfalt er það nú. (Forseti hringir.) Ef almannahagsmunir eiga að ráða þá snúast almannahagsmunir um það að menn hafi arð af því sem þeir eru að gera.