154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[22:55]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við erum eiginlega komin á einhverja hringekju sem virðist erfitt að stoppa. Þegar um er að ræða tegundir sem hafa verið kvótasettar í upphafi fyrir einhverjum árum, jafnvel áratugum, þá er ekki hægt að fara í tímabindinguna af því að komin er einhver reynsla, og svo þegar við erum með nýjar tegundir sem á að fara að kvótasetja þá er ekki heldur hægt að gera það af því að við vitum ekki hvað það hefur í för með sér. Það er alveg rétt, og ég kannast við þessa umræðu um lagareldið sem hv. þingmaður nefnir og dregur í umræðuna, en það heyrist bara frá þeim sem eru algjörlega gallharðir á móti tímabindingunni. Þetta eru bara enn ein rökin sem eru dregin upp úr hattinum. Þau lögfræðiálit sem ég hef lesið hafna þessu algerlega flatt. Það hefur ekkert að gera með tímabindinguna hvort hægt er að sekta eða skerða ef menn brjóta í bága við það leyfi sem er gefið.

Ég þekki það að hv. formaður Framsóknarflokksins lagði fram sínar tillögur, hvort sem það var árið 2015 eða 2016, og vildi ég bara óska þess að Framsóknarflokkurinn hefði haldið fast í þær af því að ég er sannfærð um að við erum býsna nálægt því að vera með meiri hluta á þingi fyrir þeim, það eru það margir sem sjá sanngirnina í þessu. En þegar endalaust eru tínd til einhver mótrök þá staldrar maður við málið, þegar svo margir leggja svo mikið á sig til að stoppa það að umræðan fari í eitthvert vitrænt horf. Ég er alveg sammála því og það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að það var ekki endilega tilefni eða hlutverk þessarar nefndar að draga svo stórt og mikið mál upp úr hatti sínum við framlagningu þessa máls. Ég er meira að draga fram stóru línurnar í þessu. Þær eru nefnilega ekki margar eftir, tegundir nytjafiska sem eiga eftir að fara inn í þetta kerfi, sem er þrátt fyrir allt ríkjandi kerfi. Það er að mörgu leyti miður að þessi endalaust svarti blettur skuli vera á þessu ágæta kerfi okkar sem hefur að vissu leyti sannað gildi sitt þegar kemur að verndun og því að vinna gegn ofveiði. (Forseti hringir.) Við klikkuðum á að láta samfélagslega sanngirnisþáttinn fylgja með. (Forseti hringir.) Mér hefði þótt gott að sjá okkur taka umræðuna um það mál eða þá að stjórnin sjálf (Forseti hringir.) legði fram mál þar sem þetta er með. Þetta er eiginlega ekki spurning en ég hefði áhuga á að heyra innlegg hv. þingmanns.