veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, sem var ekki beint með spurningu um þetta sem við vorum að ræða. Hvernig sjáum við þetta fyrir okkur? Ég held að margir sérfræðingar séu betur til þess fallnir að svara því sem snýr að því hvernig þú ferð með tímabindingu og þegar þetta er ótímabundið, hvað gildir í stjórnarskrá o.s.frv. Það er nú samt alltaf lykillinn að þessu þegar þú ert með þessa auðlind fyrir framan þig sem er sameign þjóðarinnar. Ég veit að ég og hv. þingmaður erum sammála hvað það varðar að þetta er sameign þjóðarinnar sem við veitum ákveðinn aðgang að. Hvernig verður farið að því að hafa þetta tímabundið eða ótímabundið er væntanlega bara samningsatriði sem við tökum síðan til umræðu og leiðum í lög á Alþingi. Hvenær að því kemur get ég ekki svarað. En við þurfum samt alltaf að horfa til þess að þeir hagaðilar sem að þessu koma hljóti ekki skaða af þegar farið er í ákveðna reglubindingu og annað sem viðkemur þessu. Við verðum alltaf að horfa til þess, og það held ég að eigi við um alla sem að þessu koma, að við erum með takmarkaða auðlind og ætlum að reyna að nýta hana á sjálfbæran hátt með sem hagkvæmustum hætti þannig að hún skili okkur arði. Hvort það er tímabundið eða ótímabundið þarf tíminn að leiða í ljós. Ég vil ítreka það að hingað til hefur það verið vilji okkar í Framsókn að horfa til þess að takmarka árafjöldann, að þetta sé ekki ótímabundið og að horft verði til þess innan einhverra ára hvað aðgang að auðlindinni varðar.