154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[23:00]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta atvinnuvn. (Gísli Rafn Ólafsson) (P):

Frú forseti. Hér erum við að ræða mál sem hefur komið inn í þingið á óvenjulegan hátt, ekki mál sem kemur frá ráðuneyti heldur mál sem meiri hluti atvinnuveganefndar ákvað að taka upp og gera að sínu, reyndar næsta óbreytt frá síðasta ári. Það er verið að keyra það í gegn á lokametrunum. Þetta er reyndar frumvarp sem er búið að vera tilbúið í nefndinni í marga mánuði og reyndar voru nefndarálitin skrifuð í fyrra þegar sambærilegt mál var lagt fram.

Við skulum snúa okkur að málinu. Við allar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða er mikilvægt að hafa það grundvallarstef í huga að líta ber á sjávarauðlindina sem sameiginlega og ævarandi eign íslensku þjóðarinnar. Í íslenska aflamarkskerfinu, eins og það er skilgreint í lögum um stjórn fiskveiða, felst takmörkun á þessum rétti þjóðarinnar þar sem aflaheimildum er úthlutað með hætti sem færir fáum aðilum langvarandi eignarráð yfir sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar og heimild til ráðstöfunar á þeim.

Engu að síður er núverandi kerfi það sem íslenska þjóðin býr við og mikilvægt að gæta þess að öll lagasetning byggist á þeim raunveruleika sem núverandi lagaumhverfi býður upp á.

Í frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að úthluta aflahlutdeild til veiða á grásleppu. Sambærilegt mál, en þá einnig með ákvæðum um sandkola og hryggleysingja, var áður til meðferðar á 151. löggjafarþingi en varð ekki útrætt. Við framlagningu málsins á 152. löggjafarþingi voru felld út ákvæði er varða hlutdeildarsetningu grásleppu, en þess í stað staðfest hlutdeildarsetning á sandkola og hryggleysingjum. Á 153. löggjafarþingi var frumvarp um veiðistjórn grásleppu lagt fram, en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið nú er nær óbreytt frá fyrra löggjafarþingi en eins og kom fram áður er lagt fram af meiri hluta nefndar en ekki af ráðuneytinu sjálfu. Jafnvel er skrýtnara í öllu þessu að í úttekt á málinu frá nefndinni var einn stjórnarflokkurinn, sem upphaflega stóð að frumvarpinu, ekki lengur með á álitinu.

Þegar væntingar eru til þess að slík kvótasetning kunni að fara fram skapar það hvata til kappveiða þar sem veiðimenn keppast við að ná veiðireynslu sem verði grundvöllur til kvótaúthlutunar. Slíkt er afar óheppilegt, bæði fyrir sjómenn sem leggja á sig aukna vinnu og aukna slysahættu, en einnig fyrir nytjastofninn sjálfan.

Grundvallaratriði við fiskveiðistjórn er að viðhöfð sé vísindaleg stjórn á því hvaða veiði er heimiluð og hvernig aflahlutdeild er úthlutað. Það er nauðsynlegt til að vernda nytjastofna við Íslandsstrendur, stuðla að sjálfbærum veiðum og standa vörð um atvinnu þeirra sem stunda veiðar. Við útvíkkun kvótakerfisins, eins og þá sem lögð er til með kvótasetningu grásleppu, vakna þó spurningar um grundvöll kerfisins sem byggt er á. Óumdeilt er að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi, þar sem aflahlutdeild er úthlutað á grundvelli veiðireynslu og þar sem framsal aflahlutdeildar er heimilað, hefur leitt til þess að yfirráð yfir sjávarauðlindum landsins hafa safnast á fáar hendur. Fáir aðilar hafa nú mikil yfirráð í íslenskum sjávarútvegi og njóta þeirra takmörkuðu eignarréttinda sem aflahlutdeild fylgir, sem er þó ekki takmarkaðri en svo að þeir geta nokkurn veginn gengið að nýtingu hennar vísri um ókomna tíð. Hagnýting auðlindanna er þar með orðin nokkurs konar einkamál þessarar konungsfjölskyldu íslenska fiskveiðistjórnarkerfisins. Það að færa fleiri nytjastofna undir þetta sama kerfi mun að lokum leiða til sömu samþjöppunar og sést hefur í öðrum nytjastofnum.

Um þá aðferð að úthluta aflahlutdeild á grundvelli veiðireynslu má segja að hún verðlauni frumkvöðla innan greinarinnar og þá sem hafa lagt á sig vinnu við að útfæra nýjar aðferðir til veiða og nýtingar á nýjum nytjastofnum. Það er jákvæður hvati sem er mikilvægur í hvers konar nýsköpunarumhverfi. Á hinn bóginn, þegar um er að ræða nytjastofn sem hefur verið veiddur um áratugabil, verður að líta til þess að slíkt kann að torvelda nýliðun í greininni seinna jafnframt því sem það býr til mjög óæskilega hvata við veiðar á tegundum sem ekki hafa enn verið kvótasettar. Slíkt getur orsakað kappveiðar í aðdraganda lagasetningar þar sem útgerðir keppast við að auka veiðireynslu til að auka aflahlutdeild sína. Þessi ákefð er fylgifiskur þess ófullkomna kerfis sem við búum við, þar sem tímabundin veiðireynsla skapar í raun varanlega nýtingarheimild, og verðmæti aflahlutdeildarinnar endurspeglar það. Ef hlutdeildin væri ekki varanleg væri hvatinn til kappveiða ekki jafn afgerandi.

Það sem er þó alvarlegast við núverandi kerfi um úthlutun aflahlutdeildar er eflaust að í því felst gjöf á því sem er í raun varanleg nýtingarheimild á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, sem hefur mjög mikið fjárhagslegt verðmæti, án nokkurs endurgjalds. Útgerðir greiða árleg veiðigjöld fyrir nýtingu hvers árs í sumum nytjastofnum, en ekkert gjald er innheimt fyrir upprunalegu kvótaúthlutunina, sem stríðir gegn þeirri grundvallarhugmynd að auðlindir lands og sjávar séu sameign þjóðarinnar.

Markmið laga um stjórn fiskveiða er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Að mati 1. minni hluta gengur frumvarpið þvert á markmið laganna um vernd fiskstofna, almannahag og byggðasjónarmið og snýr frekar að því að útvíkka núverandi fiskveiðistjórnarkerfi sem hefur sætt vaxandi gagnrýni almennings um árabil. Kvótakerfið er mannanna verk og ekki meitlað í stein. Við alla endurskoðun, breytingu eða útvíkkun á því verða hlutaðeigandi að þora að spyrja sig hvort kerfið þjóni heildarhagsmunum þjóðarinnar. Ef svo er ekki verða stjórnmálamenn að hafa til þess þor og hugrekki að gera þær breytingar á kerfinu sem þörf er á. 1. minni hluti telur ljóst að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi þjóni ekki heildarhagsmunum þjóðarinnar og hafi aukið misskiptingu í íslensku samfélagi.

Við Píratar leggjumst því eindregið gegn því að þetta mál verði samþykkt. Hér hafa komið fram í ræðum hjá öðrum hv. þingmönnum og munu eflaust koma fram í fleiri ræðum sem eftir eru á mælendaskrá, margar alvarlegar athugasemdir, bæði við það hvernig þetta frumvarp hefur farið í gegnum þingið, hvernig ekki hefur nægilega verið kallað eftir gestum eftir að breytingartillögur og annað hefur komið fram, og við það að ekki hafi verið framkvæmt mat á því hvort þessi hlutdeildarsetning og löggjöfin sem hér er verið að ræða standist í raun atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrár lýðveldisins.

En það er nú einu sinni þannig hér á þingi að meiri hlutinn getur þrýst sínum frumvörpum í gegn með sínu meirihlutavaldi. Þau tól og tæki sem við í stjórnarandstöðu höfum eru sífellt færri og þetta þing hefur einkennst af því að sum af þeim tólum hafa verið tekin af okkur með nýjum lögskýringum á því hvernig þingskapalög virka. Það er nokkuð sem við teljum að þurfi að íhuga alvarlega vegna þess að við þurfum að hafa lýðræðislega umfjöllun. Við þurfum að geta byggt á gögnum og við þurfum að geta leitað þeirra álita sem þarf og við teljum þurfa til þess að hægt sé að fara almennilega í gegnum það hvort svona frumvörp standist yfir höfuð önnur lög og stjórnarskrá.

Við Píratar munum því ekki styðja þetta frumvarp þegar það fer í gegnum atkvæðagreiðslur seinna í dag og á morgun, aðallega á morgun. Reyndar er bráðum kominn nýr dagur. Við munum berjast gegn þessu en því miður eru okkar tól til að stöðva þetta mál ekki nægileg og munum við því sjá Verbúðina halda áfram í nýrri seríu um grásleppuna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)