154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[23:12]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða, veiðistjórn grásleppu, frá 2. minni hluta atvinnuveganefndar.

Með frumvarpi þessu er lagt til að færa grásleppu inn í gjafakvótakerfið og skerða þar með atvinnufrelsi landsmanna. Aðeins má takmarka atvinnufrelsi ef almannahagsmunir krefjast þess, sbr. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Ég velti fyrir mér hvaða almannahagsmunir skyldu nú liggja að baki því að við skyldum þurfa að kvótasetja grásleppu af öllu. Við umfjöllun málsins í nefndinni kom skýrt fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og matvælaráðuneytis að ekkert benti til þess að grásleppa væri ofveidd og að núverandi stjórnun stofnsins næði ekki markmiðum um fiskvernd. Það gefur augaleið að með samþykkt frumvarpsins yrðu lögfest ákvæði sem brytu í bága við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem þingmenn hafa svarið eið að vernda.

Frumvarpið stuðlar ekki að þeim markmiðum sem liggja því til grundvallar. Markmið frumvarpsins var sagt vera að stuðla að:

a. Verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna Íslands og tryggja þannig trausta atvinnu og byggð í landinu. — Við skulum skoða a-lið áður en lengra en haldið. Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvernig það tryggir trausta byggð í landinu ef koma á með enn eitt kvótakerfið með framsali, framleigu og öllu sem því fylgir. Ég veit ekki hvort það er bara ég sem hef tekið eftir því hvernig komið er fyrir sjávarplássum, viðkvæmum sjávarplássum hringinn í kringum landið, áður blómlegum byggðum sem nú er að blæða út.

b. Auknum fyrirsjáanleika og hagkvæmari veiðum.

c. Sjálfbærni veiða og vera hvatning til nýsköpunar þar sem aðilar reyna að fá sem mest verðmæti úr aflahlut sínum.

d. Bættri umgengni um auðlindina og minnka óæskilegan meðafla.

e. Einföldun á stjórnsýslu og eftirliti.

Við yfirferð málsins kom skýrt fram að frumvarpið næði engu af framangreindum markmiðum heldur stuðlaði í sumum tilfellum að algerlega hinu gagnstæða:

a. Reynslan af kvótasetningu aflaheimilda á liðnum árum gefur til kynna að það eigi sér stað mjög hröð samþjöppun veiðiheimilda ef frumvarpið verður að lögum. Sömuleiðis fengi stór hluti handhafa grásleppuleyfa ekki nægjanlega mikla úthlutun til þess að hagkvæmt yrði að hefja veiðar yfir höfuð. Þær sjávarbyggðir sem standa veikast fara án nokkurs efa verst út úr samþjöppuninni og því er allt tal um að frumvarpið stuðli að traustri byggð hrein öfugmæli. Vissulega eru settar upp varnir í frumvarpinu með það að markmiði að koma í veg fyrir samþjöppun, en það er víst að þær halda jafn vel og þau ákvæði sem nú eru um kvótaþak tengdra aðila í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eða alls ekki.

b. Skýrt kom fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar að kvótasetning hefði engin áhrif á fyrirsjáanleika, þ.e. hvenær veiðiráðgjöf yrði tilkynnt, en hún byggist annars vegar á niðurstöðum stofnmats botnfiska að vori og hins vegar að hluta til á stofnmati botnfiska frá árinu áður.

c. Það á við um íslenska sjómenn sem og aðra landsmenn að þeir reyna að gera sem best í sinni vinnu og búa til sem mest verðmæti úr því sem þeir fást við. Hins vegar er fyrirsjáanlegt að frumvarpið leiði af sér að fjöldi útgerða fái til sín of litlar aflaheimildir til þess að útgerð borgi sig.

d. Meðafli er háður veiðitímabili, fjölda neta sem eru í sjó og algerlega ófyrirsjáanlegum þáttum á borð við fiskgengd annarra fiska á veiðislóðinni og sömuleiðis ætisleit sjávarspendýra og fugla á slóðinni. Mikilvægt er því að tryggja að smábátasjómenn hafi bæði svigrúm til þess að landa meðafla og fénýta hann, auk þess að takmarka fjölda neta í sjó.

e. Það gætir greinilega mikils misskilnings hjá frumvarpshöfundum um að kvótasetning leiði bæði til einfaldari stjórnsýslu og eftirlits. Það má náttúrlega öllu nafn gefa hér á hinu háa Alþingi, eins og alltaf frá því að ég kom hingað. Við yfirferð málsins kom skýrt fram að áfram þyrfti að fylgjast með veiðitímabili, m.a. til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstur æðarbænda og grásleppukarla. Sama á við um fjölda neta í sjó en hvorki hvalir né selir gera greinarmun á netum eftir því hvort net eru í kvótakerfi eða sóknardagakerfi. Við verðum eiginlega að setja þessa hvali og seli á námskeið því að það er náttúrlega alveg ömurlegt að þeir skuli vera svo skyni skroppnir að þeir geri ekki greinarmun á netum sem eru annars vegar kvótatengd eða ekki.

Hvað varðar vinnubrögð matvælaráðherra á 153. löggjafarþingi þá er ámælisvert við vinnslu frumvarpsins þegar það kom fram á síðasta löggjafarþingi að svo virtist sem matvælaráðuneytið hefði sniðgengið heildarsamtök smábátasjómanna, LS, og ekki svarað rökstuddum athugasemdum þeirra efnislega. Í stað þess hafði ráðuneytið gert málflutning klofningshópa einstaka grásleppuútgerða, sem hafa yfir nokkurri veiðireynslu að ráða, að sínum. Ekki þarf að koma á óvart að nokkur hluti núverandi handhafa grásleppuleyfa sé fylgjandi hlutdeildarsetningu. Eignarhald á varanlegum aflaheimildum getur tryggt mönnum verðmæta söluvöru þegar menn ákveða að hætta útgerð. Eðlilega geta þeir hagsmunir haft mikil áhrif á afstöðu þeirra hvað hlutdeildarsetningu varðar og eru þá tínd saman ýmis rök sem standast ekki nánari skoðun.

Ráðherra kastar boltanum yfir til atvinnuveganefndar. Það var svolítið athyglisvert, skal ég segja ykkur. Frumvarp sem fjallaði um kvótasetningu grásleppu var til umfjöllunar á síðasta löggjafarþingi. Það frumvarp féll svo niður við þinglok. Þegar Alþingi tók aftur til starfa síðasta haust fór af stað undarleg atburðarás. Skyndilega vildi þáverandi hæstv. matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, ekki leggja fram frumvarpið að nýju, sennilega vegna þess að það þykir ekki vinsælt meðal stuðningsmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Því var leitað til formanns atvinnuveganefndar og útkoman varð sú að meiri hluti nefndarinnar lagði fram nánast óbreytt frumvarp frá því sem áður var frá þáverandi matvælaráðherra. Vert er að staldra við þegar ráðherrar kjósa að endurflytja ekki eigin frumvörp, heldur fara þess á leit við fastanefndir þingsins að þær leggi málin fram í stað ráðherranna, enda er það mjög einkennilegt. Ég man ekki eftir því, í fljótheitum a.m.k., að ég hafi orðið vitni að slíkum vinnubrögðum í þessi sjö ár sem ég hef verið á þingi en það hefur svo sem komið fyrir, þó að ég sé ekki alveg með það á takteinum, að slíkt hafi verið gert, að málum sé komið frá ráðherranum yfir á fastanefnd og óskað eftir því að nefndin taki utan um málið. En í þessu tilviki er þetta eiginlega meira en stórfurðulegt. Ég læt nú boltann liggja hvað það varðar og fólk verður bara að reikna það út sjálft hvers vegna þessi staða teiknaðist upp.

En við segjum nei við kvótasetningu á grásleppu. Kvótakerfið hefur ekki stuðlað að aukinni verðmætasköpun, heldur þvert á móti. Þær veiðitölur sem algengar voru fyrir komu kvótakerfisins hafa aldrei sést aftur. Þá hefur kvótakerfið lagt í rúst blómlegar byggðir víða um land. Kvótakerfið hefur einnig fært einstaka útgerðarmönnum fúlgur fjár á kostnað almennings og þeir hafa notað nýfengin völd sín til að kalla eftir útvíkkun og vernd gjafakvótakerfisins ár eftir ár. Mikið vill meira, þeir fá aldrei nóg. 2. minni hluti vill vinda ofan af þessari þróun og telur fráleitt að kvótasetja fleiri tegundir.

Það skal tekið fram að 2. minni hluti er ekki búinn að gleyma því þegar framsal kvótans varð að veruleika. Ég er heldur ekki búin að gleyma þeirri frábæru þáttaröð sem heitir Verbúðin og var sýnd í íslenska sjónvarpinu fyrir ekki alllöngu síðan. Frábærir heimildaþætti sem byggðu nákvæmlega meira og minna á þeirri verkun sem íslenska landsbyggðin og íslensku sjávarplássin máttu ganga í gegnum við tilkomu kvótakerfisins, enda áttaði ég mig ekki á því að það er búið að kvótasetja sæbjúgu og sandkola. Ég er ekki alveg búin að skoða og veit ekki með hornsíli, sennilega eru þau enn þá í friði en það mætti kannski drífa í að kvótasetja þau líka. Það er nú eiginlega allt kvótasett sem fær að sigla út í sjó nema kannski það sem kemur úr klóakinu, ég veit það ekki alveg en sjálfsagt eru verðmæti í því líka.

Það er í rauninni til ævarandi skammar hvernig auðlindin okkar er færð á fárra manna hendur, til ævarandi skammar. Það er stórfurðulegt að í ríkisstjórn sem áður var undir forystu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í tæp sjö ár, þar til nú nýverið að þáverandi forsætisráðherra fór í forsetaframboð, að það skyldi vera haldið áfram að reyna að þröngva í gegn frekari kvótasetningu. Það hefur jú verið kvótasett í þeirra umboði og þeirra tíð og meira að segja hefur snurvoðarbátum verið nánast hleypt upp í kálgarð, eins og þeir fara nú vel með grunnsævið, og meira vélarafl og stærri bátar komast nær og nær landi og væntanlega helst bara á hornsílaveiðar. Þessi þróun sem við horfum upp á hér þegar ég hélt í rauninni að allir sæju hversu stórkostleg mistök það hefðu verið að koma með þetta kvótakerfi í því formi sem við þekkjum í dag — á sama tíma er verið að básúna það að þetta sé besta fiskveiðistjórnarkerfi í heimi, að færa auðlindina okkar á fárra manna hendur og er hún í raun farin að bera öll einkenni eignarréttar um leið og einstaklingar eru farnir að geta keypt og selt fiskinn, óveiddan fiskinn í sjónum, eftir behag.

Við í Flokki fólksins berjumst gegn þessu kerfi af öllum lífs- og sálarkröftum. Við í Flokki fólksins höfum viljað auknar strandveiðar, frjálsar handfæraveiðar. En hér á hinu háa Alþingi verður maður að taka þetta í litlum, pínulitlum skrefum. Það virðist vera meginatriðið, að reyna að taka þetta í litlum skrefum og ná litlum áfangasigrum eins og hægt er. En bara svo við tölum um það þá þurftu strandveiðibátarnir okkar 11. júlí í fyrra að kippa og fara í land: Allt búið, bless. Þið fáið ekki meira að veiða. 5,3% af úthlutuðum potti fara í strandveiðarnar. Það er alveg nákvæmlega sama hvort fiskarnir eru 50 kíló og svo mikið af þeim að það má ekki dýfa niður krók og þá er bara fiskur á öllum krókum. Það er ekkert hlustað á strandveiðisjómennina sem segja að hafið sé vaðandi í þorski. Það er ekkert verið að hlusta á það. Í rauninni er verið að koma í veg fyrir að þessi litlu sjávarpláss og þær fjölskyldur sem þurfa á því að halda að sækja sjóinn geti aukið tekjur sínar. Þeim er gert það ómögulegt. Við vitum alveg að fiskgengd er mismunandi í kringum landið eftir árstíma. Straumar og stefnur verða þess valdandi að þegar búið er að skipta svæðinu í kringum landið í hólf, A, B, C, D, þá er kannski hólfið fyrir vestan búið að veiða megnið af pottinum þegar gengdin fer loksins norður og austur fyrir land. Menn eru því farnir að taka sig upp austur á landi og í sínum byggðarlögum til að drífa sig vestur á Patreksfjörð eða eitthvað til þess að geta tekið þátt í strandveiði. Við í Flokki fólksins viljum líka sjá byggðakvótann og sérstaka byggðakvótann fara beinustu leið inn í strandveiðipottinn. Við viljum byrja þar áður en við, þegar við erum komin með sjávarútvegsráðuneytið, gerum handfæraveiðar frjálsar. Því eitt er alveg víst, að krókaveiðar, handfæraveiðar ógna ekki lífríkinu í kringum landið.

En ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan: Með þessari kvótasetningu er hreinlega verið að brjóta 75. gr. stjórnarskrárinnar, hvorki meira né minna, því að það má aðeins takmarka atvinnufrelsi ef almannahagsmunir krefjast þess. Það eru engir almannahagsmunir sem liggja því að baki að færa grásleppuna á fárra hendur, engir. Svo það sé algerlega á hreinu.