154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[23:29]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Frú forseti. Ég hefði kosið að geta staðið upp og rætt hrognkelsi af annarri ástæðu en þeirri að hér stæði til að kvótasetja veiðar á grásleppu því að ég hef mjög gaman af að tala um hrognkelsi og grásleppu og rannsóknir og rannsóknarniðurstöður í þeim efnum sem verður að bíða betri tíma og annars vettvangs. Í hrekkleysi mínu taldi ég að þetta frumvarp nokkurra nefndarmanna, sem ekki er stjórnarfrumvarp, kæmi ekki til afgreiðslu hér í ljósi þess að einn stjórnarflokkanna, VG, stóð ekki að úttekt málsins úr nefnd eða er á nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar. Hér starfar þriggja flokka meirihlutastjórn sem VG á aðild að. Aukinheldur verður ekki fram hjá því horft að samþykkt málsins samrýmist ekki stefnu hreyfingarinnar og þeim málflutningi sem Vinstri græn hafa haldið uppi til skamms tíma eða á þriðja áratug.

Hér hlýddi ég á framsögumann í upphafi fara með ýmis atriði. Eitt sem hann nefndi sérstaklega var að mikill meiri hluti grásleppusjómanna vilji kvótasetningu. Nú veit ég ekki hvaða vísindi hann styðst við í því eða er að miða kannski við að það eru sjálfsagt fleiri sem verða þeim megin eftir því sem þeir verða eldri og styttra í að þeir ljúki starfsævinni. En ég hygg að hann fari ekki alveg með rétt mál og ég held að það sé líka veruleg ástæða til að horfa til þeirra sem yngri eru og fólks sem við viljum fá inn í veiðarnar, að fólk hafi tækifæri til að taka upp grásleppuveiðar og njóta þess og fylgja eftir sínu byggðarlagi, tækifæri fyrir ungt fólk að komast inn í greinina. Ég held að það sé heldur ekki hægt að horfa fram hjá því að þó að vissulega geti verið persónulegir hagsmunir tengdir því að geta breytt veiðirennsli í kvóta sem menn mögulega vilja síðan selja frá sér, þá eru það ekki endilega hagsmunir viðkomandi byggðarlaga. Okkar hér á Alþingi er náttúrlega sérstaklega að gæta að almannahagsmunum og þar tel ég hagsmuni byggðarlaganna vega þungt.

Hér var líka nefnt af framsögumanni að þetta væri eina tegundin sem ekki væri búið að kvótasetja og það svona hljómaði eins og verkefnið væri einhvern veginn að ljúka því að kvótasetja allt sem hægt væri að kvótasetja. Ég held að þetta sé einmitt ágætisáminning um það að þarna var ein tegund sem var ekki búið að kvótasetja og því tækifæri fyrir ungt fólk og annað fólk að komast inn í greinina, komast inn í sjávarútveginn og efla líf í þessum sjávarplássum. Það var einmitt þarna ein tegund sem ekki var búið að kvótasetja og er ekki ástæða til. Svo áttaði ég mig ekki á því hvað var verið að vísa í varðandi strandveiðar eða mögulega kvótasetningu á því sem þar fer fram.

En svona til að halda aðeins áfram og meta stöðuna: Er grásleppan ofveidd núna? Er lausnin og algjör nauðvörn í því sambandi að kvótasetja hrognkelsi? Í því tilviki fannst mér athyglisvert að heyra viðtal við og sjá glöggan fiskifræðing á Hafrannsóknastofnun sem ræddi um grásleppu. Í viðtalinu kom skýrt fram að að hans og væntanlega að stofnunarinnar mati væri grásleppa ekki ofveidd innan núverandi fiskveiðistjórnarkerfis. Guðjón Már Sigurðsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun sem ég er að vísa hér til, sagði, með leyfi forseta:

„Við höfum haft dálitlar áhyggjur af meðaflanum, sérstaklega á sel og fuglum eins og teistu: þetta eru stofnar sem hafa átt dálítið undir högg að sækja og eru að koma í grásleppunetin.“

Hann segir að ávinningur af kvótasetningu gæti líka fengist innan núverandi kerfis, eins og við mörg vitum. Enn fremur ræddi hann að það væri allsendis óvíst hversu mikil áhrif kvótasetning á grásleppu gæti haft og þar nefnir hann m.a. að forðast ákveðin tímabil eða svæði með því en að það væri ábyggilega hægt að setja eitthvert svoleiðis ákvæði inn í núverandi veiðistjórn. Það er akkúrat málið að það er ósköp einfalt að gera það. Það er mjög einfalt að undanskilja ákveðin svæði á ákveðnum tímum, tala nú ekki um þar sem eru veiðilendur nálægt viðkvæmu fuglalífi á þeim tíma sem mest er um að vera þar. Því getum við auðvitað stýrt að vild og skiptir ekki máli hvaða fyrirkomulag er þar viðhaft, núverandi með umbótum á því eða kvótasetningu. Hann benti einnig á að náðst hefði mikill árangur í að minnka meðafla og hægt var að fækka frekar fugli í meðafla með því að hætta að leggja net á grynnstu svæðunum. Eins og ég nefni hér er þetta alfarið í okkar höndum hvernig við viljum stýra því á einstökum svæðum sem eru sum viðkvæmari en önnur á ákveðnum tímum og líka vegna þess að veiðitímabilið er ekki það sama eftir því hvar við erum á landinu.

Í umsögn sinni um málið bendir Landssamband smábátaeigenda á að verði samþykkt að stjórna grásleppuveiðum með aflamarki munu smærri aðilar hrökklast úr greininni. Vegna ágreinings og túlkunar á frumvarpinu um veiðistjórn á grásleppu telur LS enn fremur farsælast að matvælaráðherra skipi nefnd þar sem vegnir verða saman kostir núverandi veiðistýringar á stjórnun með aflamarki. Tek ég heils hugar undir þá tillögu en ljóst er orðið að meiri hluti atvinnuveganefndar hafði ekki auðnu til þess að hafa frumkvæði að slíkri greiningu. Landssamband smábátaeigenda bendir á í umsögn sinni að skv. 75. gr. stjórnarskrárinnar sé öllum „frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“ Nú eru alls 400 sjálfstæðar útgerðir sem hafa rétt til að stunda grásleppuveiðar að atvinnu. Með frumvarpinu er meiri hluta þeirra gert ókleift að stunda veiðarnar. Núverandi veiðistjórn tryggir öllum grásleppubátum jafn marga daga til veiða. LS fullyrðir að almannahagsmunir krefjist þess ekki að þeir séu sviptir þeim rétti.

Meðal þess sem Landssambandið fer yfir í umsögn sinni eru mikilvægir kostir við núverandi veiðistjórn. Svo ég nefni nokkra: Hverju leyfi fylgja jafn margir dagar til veiða. Það er jafnræði. Veiðarnar eru bundnar við smábáta, báta minni en 15 brúttólestir. Það er engin veiðiskylda. Fjöldi leyfa tryggir nýtingu veiðiheimilda við góð verðtilboð. Gefur nýjum aðilum tækifæri til að hefja útgerð. Viðheldur áratuga menningu sjávarbyggða. Viðheldur jafnvægi í veiðum smábáta. LS bendir einnig á nokkur atriði sem samtökin telja geta styrkt núverandi kerfi. Þess á meðal er að heimila sameiningu veiðileyfa, að heimilt verði að gera hlé á veiðum og að lágmarksúthlutun verði tilgreind. Þá varar LS við því að verði frumvarpið að lögum standi margir grásleppusjómenn frammi fyrir því að aflaverðmæti veiðiheimilda nægir ekki fyrir þeim kostnaði sem þeir hafa lagt í.

Umsögn Strandveiðifélagsins Króks, félags smábátaeigenda í Barðastrandarsýslu, um frumvarpið er beinskeytt og skýr. Þar segir, með leyfi forseta:

„Frumvarp þetta leggur til að færa grásleppuna inn í gjafakvótakerfið og skerða þar með atvinnufrelsi landsmanna. Það má aðeins takmarka atvinnufrelsið ef almannahagsmunir krefjast þess, sbr. 75 gr. stjórnarskrárinnar. Við umfjöllun málsins í atvinnuveganefnd kom skýrt fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og matvælaráðuneytis að ekkert benti til þess að grásleppa væri ofveidd og að núverandi stjórnun stofnsins næði ekki markmiðum um fiskvernd. Það gefur augaleið að með samþykkt frumvarpsins yrði lögfest ákvæði sem brytu í bága við þá stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem þingmenn hafa svarið eið að vernda.“

Halldór Gunnar Ólafsson, sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Biopol á Skagaströnd, þekkir betur til grásleppuveiða og rannsókna en flestir. Saman hófum við grásleppurannsóknir fyrir 15 árum síðan eftir að þær höfðu legið niðri meira og minna á Íslandi í 20 ár. Væri nú gaman að nýta tímann og fara yfir þær rannsóknir og niðurstöður þeirra sem hafa verið einkar athyglisverðar og skipta máli líka fyrir veiðistjórn og hvernig við stundum hana best, svo sem niðurstöður merkinga á grásleppu, bæði upp á endurheimtur og einnig farleiðir og faratferli þeirra milli svæða og slíkt, lífshætti, lífssögu. Eins og mér þætti gaman að fara aðeins lengra og meira yfir þær rannsóknir og niðurstöður þeirra þá held ég að ég verði eins og ég sagði í upphafi að finna annan stað og stund til þess. En þær skipta samt máli og það skiptir líka máli hvað fólk segir sem þekkir til og þess vegna nefni ég þetta hér.

Í umsögn Halldórs Gunnars um frumvarpið segir:

„Á stöðum eins og Skagaströnd hafa heimamenn verið að fjárfesta í smábátum og horft til strandveiða, grásleppuveiða og byggðakvóta til þess að skapa fyrirtækjum sínum grundvöll. Grásleppuveiðar hafa þar skipt miklu máli enda verð á grásleppuleyfum verið yfirstíganlegt fyrir minni útgerðir og nýliða innan smábátaútgerðar.

Grásleppuveiðar eru gríðarlega mikilvægur þáttur í atvinnulífi á ákveðnum landsvæðum. Í mörgum tilfellum er um að ræða hinar dreifðu byggðir sem hafa átt undir högg að sækja, m.a. vegna samþjöppunar innan sjávarútvegsins. Kvótasetning á grásleppu mun því að mínu mati bitna harðast á þeim sem veikastir eru fyrir.

Komi til kvótasetningar mun eiga sér stað mjög hröð samþjöppun veiðiheimilda í ljósi þess að stór hluti handhafa grásleppuleyfa mun ekki fá nægjanlega mikla úthlutun til þess að hagkvæmt sé að hefja veiðar. Stórfelld viðskipti með þessar aflaheimildir munu því eiga sér stað um leið og kvótasetning hefur verið ákveðin og líklegt er að vinnsluaðilar á grásleppuafurðum muni reyna að tryggja sér sem mest af þessum veiðiheimildum með beinum eða óbeinum hætti. Grásleppusjómenn yrðu því fljótt leiguliðar eða verktakar við veiðarnar. Ég efast um að margir trillukarlar hafi fjármagn eða veðhæfi til þess að kaupa upp aflaheimildir félaga sinna.“

Áfram langar mig að vitna í þessa góðu umsögn hans Halldórs af því hún er býsna góð og hefði sjálfsagt mátt lesa nokkrum sinnum af nefndarmönnum sem lögðu málið fram:

„Lengst af hefur sú sóknarstýring sem viðhöfð hefur verið í tengslum við grásleppuveiðar gengið nokkuð vel. Afli hefur sjaldan farið umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar en þess má geta að stofnunin gaf fyrst út leyfilegan hámarksafla árið 2012. Fram að þeim tíma skilaði grásleppunefnd LS tillögu að dagafjölda til sjávarútvegsráðherra sem gaf í kjölfarið út reglugerð um veiðarnar. Tillaga grásleppunefndar var fyrst og fremst miðuð út frá ástandi á markaði til þess að tryggja stöðugleika á honum og ásættanlegt verð fyrir afurðirnar. Þær aðstæður sem sköpuðust síðasta vor voru að ég best veit fordæmalausar. Afar sjaldgæft er að upplifa svo góð aflabrögð allt í kringum landið á sama tíma. Jafnframt voru veðurskilyrði lengst af góð m.t.t. grásleppuveiða. Ég er þeirrar skoðunar að Sjávarútvegsráðherra hefði getað gripið mun fyrr til aðgerða með það fyrir augum að auka jafnræði á milli veiðisvæða og lágmarka skaðann sem varð.“

Hér er hann að nefna mikilvægt atriði í því að tryggja það sem margir hafa haft áhyggjur af sem hafa talað fyrir kvótasetningu á grásleppu. Það er það að við höfum okkar kerfi sem við höfum í dag aðeins til lagað þannig að við tryggjum að sú staða geti ekki komið upp að öll veiðisvæði fái ekki notið sín og byggðarlög vítt og breitt um landið notið veiðanna. Það er líka nokkuð sem verður að huga að fyrir sjálfbæra nýtingu stofna og að við nýtum sem best afrakstursgetu tegundarinnar og það gerum við með því að nálgast veiðarnar með vistfræðilegri fiskveiðistjórn. Svo ég haldi áfram að vitna í Halldór þá segir hann:

„Ég tel að það sé vel hægt að sníða vankanta af núverandi kerfi með því t.d. að opna fyrir sameiningu leyfa, heimila mönnum að tilkynna að veiðarfæri hafi verið dregin upp vegna ógæfta eða óæskilegs meðafla án þess að veiðidagar haldi áfram að telja. Slíkar breytingar myndu að mínu mati auka arðsemi greinarinnar ásamt því að auka áhuga á þátttöku og nýliðun innan grásleppuveiða. Það vekur nokkra furðu hversu lítil áhersla var á slíkar hugmyndir í vinnu starfshóps sem starfaði fyrir sjávarútvegsráðherra árið 2018.“

Hér hef ég nú rakið leiðbeiningar og athugasemdir eins okkar helsta sérfræðings og þess sem mest veit um grásleppuveiðar og er ég bara sammála honum í öllum atriðum og geri hans orð að mínum hér.

Svo að ég snúi mér að nefndarálitum sem hér hafa verið kynnt og frumvarpinu eins og það lítur út þá líst mér býsna vel á margt sem stendur í nefndarálitum og get gert að mínu, ekki síst það sem kemur hérna fram frá 1. og 2. minni hluta nefndarinnar. Ef ég byrja á því að ræða nefndarálit 1. minni hluta atvinnuveganefndar, sem Gísli Rafn Ólafsson skrifar undir, þá byrjar hann á að minna á að við allar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sé mikilvægt að hafa það grundvallarstef í huga að líta bara á sjávarauðlindir sem sameiginlega og ævarandi eign íslensku þjóðarinnar. Ég held að það sé ágætt að hafa það sem upphafsorð sem oftast þegar við erum að ræða sjávarauðlindir okkar. Hann fer líka yfir hvað útvíkkun kvótakerfisins geti haft í för með sér og segir í álitinu:

„Óumdeilt er að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi, þar sem aflahlutdeild er úthlutað á grundvelli veiðireynslu og þar sem framsal aflahlutdeildar er heimilað, hefur leitt til þess að yfirráð yfir sjávarauðlindum landsins hafa safnast á fáar hendur. Fáir aðilar hafa nú mikil yfirráð í íslenskum sjávarútvegi og njóta þeirra takmörkuðu eignarréttinda sem aflahlutdeild fylgir, sem er þó ekki takmarkaðri en svo að þeir geta nokkurn veginn gengið að nýtingu hennar vísri um ókomna tíð.“ — Um ókomna tíð, hagnýtingu auðlindanna. Ég held að það sé mikilvægt að hafa þessi orð hv. þingmanns í huga. — „Það að færa fleiri nytjastofna undir þetta sama kerfi mun að lokum leiða til sömu samþjöppunar og sést hefur í öðrum nytjastofnum.“

Framsögumaður dregur líka sérstaklega fram hvaða afleiðingar þetta getur haft fyrir nýliðun í greininni, að slíkt kunni að torvelda nýliðun. Hann segir í sínum lokaorðum að markmið laga um stjórn fiskveiða sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu og að hann telji að frumvarpið í núverandi mynd gangi þvert á þau markmið. Það er ekki annað hægt en að taka undir þetta vel unna nefndarálit 1. minni hluta.

Hér er ég með nefndarálit frá 2. minni hluta atvinnuveganefndar sem hefur einnig að geyma margt gott og mikilvægt sem ég held að sé ástæða til að staldra við. Þar kemur fram í upphafi, sem ég held að sé líka rétt að minna á og kannski hefur ekki verið nægjanlega hlustað á í störfum nefndarinnar, að við umfjöllun málsins í nefndinni hafi komið skýrt fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og matvælaráðuneytis að ekkert benti til þess að grásleppan væri ofveidd og að núverandi stjórnun stofnsins næði ekki markmiðum um fiskvernd. Ég held að það sé ágætt að hafa þetta í huga sem kemur fram í þessu áliti og hefur þá komið fram á fundum nefndarinnar með þessum sérfræðingum. Þarna er líka varað við því sem hér var í öðru áliti, að reynslan af kvótasetningu aflaheimilda á liðnum árum gefi til kynna að það eigi sér stað mjög hröð samþjöppun veiðiheimilda ef þetta frumvarp nær óbreytt fram að ganga. Einnig er bent á það mikilvæga atriði sem ég nefndi hér úr öðrum umsögnum, að sömuleiðis fengi stór hluti handhafa grásleppuleyfa ekki nægilega mikla úthlutun til að hagkvæmt yrði að hefja veiðar. Þær sjávarbyggðir sem standa veikast fara án nokkurs efa verst út úr samþjöppun og því er allt tal um að frumvarpið stuðli að traustri byggð hrein öfugmæli, segir í þessu áliti, og ég held að ég verði að taka undir það líka.

Sporin hræða, er minnt á líka í þessu áliti og ég tek undir það. Einnig kemur fram, sem er mikilvægt í ljósi orða framsögumanns hér á undan, að skýrt hefur komið fram hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar að kvótasetning hefði engin áhrif á fyrirsjáanleika, þ.e. hvenær veiðiráðgjöf yrði tilkynnt, en hún byggist annars vegar á niðurstöðum stofnmats botnfiska að vori og hins vegar að hluta til á stofnmati botnfiska frá árinu áður. Og ég nefndi hér í upphafi hversu aumt það er að vera enn þá að styðjast við sömu upplýsingar og við studdumst við fyrir 40–50 árum síðan þegar mikil og ný þekking er orðin til á hrognkelsi og grásleppu sem slíkri sem við getum nýtt okkur betur í nákvæmari og traustari veiðiráðgjöf og vonandi fer nú að gerast eitthvað í þeim efnum. Fleira væri hægt að nefna. Alla vega er fyrri hluti þessa álits nokkuð sem ég held að ég geti tekið mjög vel undir.

Hér er svo annað álit sem er frá meiri hluta atvinnuveganefndar. Ég ætla kannski ekki mikið að staldra við það en þar eru atriði sem er vert að horfa til eins og að tryggja eigi nýliðun í greininni með því að heimila ráðherra að draga 5,3% af heildarafla grásleppu og úthluta því aflamarki til nýliða sem halda til grásleppuveiða í fyrsta skipti. Það er gott að halda slíku til haga.

En svona bara um kvótasetningu á hrognkelsum og hvað það getur haft í för með sér þá er vissulega hægt að gera þetta með mismunandi hætti. Við munum mörg eftir því þegar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sem var landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í nokkur ár, lagði fram frumvarp um kvótasetningu á grásleppu sem var arfaslæmt og hefði farið illa með margar sjávarbyggðir, fært veiðiheimildir á mjög fáar hendur, komið í veg fyrir nýliðun, að nýtt fólk, ungt fólk gæti komist inn í greinina. Söfnun veiðiheimilda á fáa staði á landinu hefði einnig verið til þess fallin að vinna gegn sjálfbærri nýtingu hrognkelsa. Mikilvægt er að stuðla að jafnara veiðiálagi á milli veiðisvæða svo stofnarnir geti gefið af sér með sjálfbærum hætti. Það er mikil mildi bæði fyrir byggðirnar og hrognkelsastofna að það frumvarp dó drottni sínum.

Vert er að halda því til haga hér að í frumvarpi sem lagt var fram á síðasta þingi, sem frumvarpið sem við ræðum hér dregur dám af, er í veigamiklum atriðum búið að taka betur á ofangreindum vanköntum án þess þó að fullnægjandi sé. Hér er verið að leggja til svæðaskiptingu sem skiptir miklu máli til að sporna við byggðaröskun og líka því að það verði ójöfn sókn eftir svæðum með tilheyrandi afleiðingum fyrir mögulega stofna, og til að við séum að nýta þá ekki bara með sjálfbærum hætti heldur að þeir geti gefið sem mest af sér. Það er svo sem verið að líta til sjálfbærari veiða heldur en fyrra frumvarp hér fyrir nokkrum árum lagði upp með, sem hefði bara verið hræðilegt í svo marga staði. Við þurfum nefnilega að horfa til þess að margar sjávarbyggðir treysta mjög á grásleppuveiðar.

Annað sem er hér og skiptir miklu máli, samanborið við þennan ófögnuð sem kom fyrir nokkrum árum síðan, er að það er ekki verið að tala um að heimila framsal á milli veiðisvæða. Það er skref í rétta átt og mjög mikilvægt, bæði fyrir vistfræðilega fiskveiðistjórn og fyrir byggðirnar. En hér er ég að bera þetta saman við eitthvað sem var náttúrlega miklu verra, við skulum bara hafa það í huga. Annað atriði sem auðvitað skiptir máli líka er að það er verið að tala um að 1,5% af heimildum sé hámarkið sem geti verið á einni hendi þó að einhverjir muni líklega finna leiðir til að fara í kringum það. Auðvitað skiptir þetta einnig máli og kannski er þetta of mikið, hver veit, og maður óttast að það verði leiðir fundnar til að fara í kringum það. Í því sem upphaflega var lagt fram, sem ég nefndi hér, þá hefði þetta getað farið á enn þá færri hendur og mjög auðveldlega.

Í þessu frumvarpi er líka verið að stíga ákveðin skref til að koma á móts við nýliðun en talsvert meira þarf til.

Hlutdeildarsetning á grásleppu er óþörf til að stuðla að sjálfbærri nýtingu því að hægt væri að ná sömu markmiðum og betur með umbótum á núverandi umgjörð veiðanna. Margt það sem varað hefur verið við verði grásleppa kvótasett mun enn fremur raungerast með heimildum til framsals veiðiheimilda. Ég held að það sé virkilega ástæða til að horfa til þess að hér sé ekki um ótímasettar heimildir að ræða, ef menn ætla að fara þessa leið, að það væri þá verið að tala um að úthluta til skemmri tíma en ekki hafa það ótímabundið og eiga síðan erfitt með að reka sig til baka í þeim efnum. Fyrir þá sem vilja leggja málið svona upp er mín ráðgjöf sú að það væri æskilegt að það væru tímamörk hér og ekki ótímasettar heimildir. Ef ég held áfram að reyna að setja mig í spor þeirra sem fyrir þessu standa, þessu máli, og aftur reyni að leggja eitthvað gott til þó að ég sé ekki að tala fyrir málinu sem slíku, þá vil ég líka benda á að það er sannarlega með þessu frumvarpi, verði það samþykkt, verið að taka upp nýja aðferð við fiskveiðistjórn á grásleppu með hlutdeildarsetningu. Þar sem ekki er komin reynsla á áhrif hlutdeildarsetningar á fiskveiðistjórn grásleppu — sem er á margan hátt mjög sérstök eins og við þekkjum, það getur verið ekki bara mismunandi gert heldur jafnvel mismunandi sókn eftir því hvernig verð fæst fyrir afurðir og slíkt, þannig að það eru miklar sveiflur í þessu — teldi ég í ljósi þess afar brýnt ef ætlunin væri að hlutdeildarsetja grásleppu að það væri sett inn ákvæði um tímabundna takmörkun á framsali aflahlutdeilda. Ég held að það væri stórt skref í átt til þeirra sem óttast afleiðingar af hefðbundinni kvótasetningu. Vil ég sérstaklega draga það fram að hér er ein leið til að nálgast eða færa ólík sjónarmið nær. Nú er ég ekki að segja og alls ekki — ég er að tala gegn þessu frumvarpi en ég hlýt samt að reyna að leggja gott til ef það er ætlunin að samþykkja það, að þá væri horft til þess alla vega að bæta málið hvað þetta varðar. Ég held að ef okkur auðnast að horfa til slíks þá myndi það ekki vera eitthvað sem fólk sæi eftir. Með því t.d. að vera með slíkt ákvæði erum við ekki að tala um að takmarka ráðstöfun aflamarks á tímabilinu heldur gefa tækifæri til að meta áhrif hlutdeildarsetningar án þess að hrófla við hlutdeild einstakra báta á tímabilinu.

Þetta vil ég nú leggja til með góðum hug til þeirra sem standa að þessu máli, ef menn vildu bæta og þróa það enn frekar, þó að ég sé ekki að mæla með frumvarpinu og langt í frá. Mér þykir miður að við séum stödd hér, eins og ég sagði í upphafi, í þessari stöðu. — Ég held að tíminn minn sé að klárast og læt ég þetta duga.