veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka spurningarnar. Fyrir það fyrsta var málið tekið út úr nefndinni án þess að fulltrúi VG, held ég, hafi greitt því atkvæði að taka það út eða væri á nefndarálitinu. Þannig að það gerðist með þeim hætti og eftir því sem ég kemst næst rataði meira að segja inn á dagskrá fundarins 15 mínútum áður en hann hófst að það ætti að taka málið út. Þannig að þetta bar nokkuð brátt að. Það er alveg skýrt hver stefna VG er og hefur verið og ég hef í gegnum árin oft tekið þátt í að skrifa hana og uppfæra hana þannig að ég held ég þekki hana nánast frá upphafi, Hafið bláa hafið o.fl. og fl. Við höfum verið á þessum stað og vonandi enn. Þannig að það hefur engin önnur stefna verið samþykkt eða henni breytt. Þetta er okkar stefna og ég er að tala út frá henni hér. Hvort sem við erum að ræða um mál sem kom fram á síðasta þingi eða þetta mál er mín afstaða sú sama og var sú sama og ef það hefði farið alla leið síðastliðinn vetur þá hefði ég ekki stutt það mál frekar en ég geri við þetta. Þannig að ég get svarað því.
Það að svona þingmannamál komi hér og inn í þinglokasamninga vekur furðu. Já, vissulega er gott að hafa þetta tækifæri fyrir nefnd til að geta gripið til þegar á þarf að halda til að flytja nefndarmál. Það er einhver staða sem kemur upp sem þarf að bregðast við. Það að það sé nýtt til að fara fram með nefndarfrumvarp með þessum hætti er mjög óvenjulegt og að það skuli vera lögð svona mikil áhersla á þetta í þinglokasamningum er líka sérstakt af hálfu stjórnarflokkanna og ég tala nú ekki um þegar einn þeirra virðist ekki vilja standa að því að það skuli samt gerast. Ég skal alveg lýsa verulegum vonbrigðum með að þurfa að horfa upp á slíkt.