154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:03]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Eins og ég sagði, og sagði hér í upphafi, hefur það komið mér á óvart, jafnvel þó að málið hafi verið komið fram, að við skulum vera hér núna að ræða það á þessum tímapunkti í þingstörfunum. Það kom mér verulega á óvart. Ég átti ekki von á því. Það eru líka vonbrigði að sjá það gerast. Ég nefndi líka að það væri mjög óvanalegt að sjá það gerast í samstarfi þessara flokka. Aðrir verða að öðru leyti að svara til um það hvernig þeir meta sína stöðu þar. Ég tala hér fyrst og fremst út frá stefnu flokksins, ég tala út frá minni sannfæringu og nýti líka mína þekkingu á þessu sviði, að þekkja til málanna. Hér erum við stödd til að tala út frá okkar sannfæringu og standa með okkar sannfæringu og það geri ég í þessu máli og eins og öðrum málum.