154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:08]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst mál að stefnumótun Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, sem fer með sjávarútvegsráðuneytið, er engin í sjávarútvegsmálum. Við erum með ráðherra frá Vinstri grænum, hæstv. matvælaráðherra, og hún kemur ekkert að stefnumótun hvað varðar mikilvægan málaflokk sem lýtur að sjávarbyggðum landsins og kvótasetningu í þessu máli. Hún kemur ekkert nálægt þessu. Hv. þingmaður kom og sagði að smærri aðilar myndu hrökklast úr greininni. Það er ekki veiðiskylda. Hver eru rökin fyrir að hafa ekki veiðiskyldu? Ef hann gæti aðeins komið með rökin þar, hvort hann viti til þess. Ég skil það ekki. Ef það er ekki veiðiskylda, af hverju má ekki hleypa öðrum að? Og annað: Það eru engin fiskifræðileg rök. Mér skilst að hv. þingmaður sé fiskifræðingur. Hver eru rökin? Hvaða rök sér hann fyrir þessu frumvarpi? Og hver eru rökin fyrir að leyfa framsal innan svæðanna? Það eru engin hagkvæmnisrök sem eru í gangi þarna.