veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég ætla svo sem ekki að taka að mér að færa rök fyrir því sem flutningsmenn þessa frumvarps hafa á lofti. Þau voru að einhverju leyti kynnt hér í upphafi í framsögu málsins og ég hef komið því rækilega að hér að ég er ekki sammála mörgu sem þar kemur fram — sumu en alls ekki öllu og ekki því að þetta sé lausnin eða að þörfin sé til staðar. Ég rakti þó líka — til að allrar sanngirni sé gætt — að mörg atriði eru sannarlega til bóta frá því sem upphaflega var lagt fram í þessum efnum. Þannig að þau verða að svara því.
Ég held að frekar en að samþykkja þetta nú eða klára málið eigi frekar að nota tækifærið, eins og hér var bent á og bent var á í umsögn Landssambands smábátaeigenda, og bera saman leiðir til að ná fram sem bestri niðurstöðu fyrir byggðirnar og líka með tilliti til veiðistjórnunar og verndunar stofnanna, að það sé settur starfshópur í að fara yfir og meta þessa kosti eins og Landssambandið lagði til. Það er enn þá tækifæri til þess að fara þá leið áður en það verður hrapað að einhverju.