154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:11]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni fyrir fína og efnismikla ræðu um málefni sem hann hefur klárlega töluverða þekkingu á yfir að ráða. En mig langar líkt og aðrir sem tekið hafa til máls að beina athyglinni að upphafsorðunum af því að þau voru býsna hörð og afgerandi um aðdraganda þessa máls. Ég verð eiginlega að segja sem nefndarmaður í atvinnuveganefnd að í ljósi þess að hér er jú um að ræða áður flutt frumvarp matvælaráðherra Vinstri grænna frá síðasta þingvetri, mál sem fór alla leið hingað inn vorið 2023 með meirihlutaáliti sem á var m.a. hv. þáverandi þingmaður, Bjarkey Gunnarsdóttir Olsen, núverandi matvælaráðherra Vinstri grænna, get ég ekki á neinn hátt rekið það úr aðdraganda þessa máls að það gangi í berhögg við stefnu Vinstri grænna og er ég þó alls ekki að rengja hv. þingmann sem heldur því fram. Þannig að ég bara finn mig knúna til að spyrja: Hvað hefur breyst? Og ef ég á að leggja mín lóð á þær vogarskálar myndi ég segja: Lengi getur vont versnað að þetta snúist þá fyrst og fremst um að það hafi súrnað enn þetta stjórnarsamstarf, ef samstarf skyldi kalla, og hér sé þá hv. þingmaður að koma fram með afstöðu í máli sem er enn ein birtingarmynd þess. Mig langar einfaldlega til að spyrja, vegna þess að þetta mál er komið til atkvæða hér í þingsal í fyrramálið: Er þingflokkur Vinstri grænna að fara að greiða atkvæði með þessu máli sem tveir (Forseti hringir.) ráðherrar málaflokksins úr þingflokki Vinstri grænna hafa stutt?