154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:13]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég sagði í upphafi hefur ekkert breyst í á þriðja áratug í stefnu og nálgun Vinstri grænna á þessi mál. Ef það stæði til að breyta stefnu þá væntanlega yrði það tekið upp og farið í þá vinnu á vettvangi flokksins og með grasrótinni og fólki sem vill hafa að því aðkomu. Varðandi afstöðu til þessa þingmannafrumvarps sem nokkrir hv. þingmenn úr atvinnuveganefnd flytja hér þá hefur það í sjálfu sér lítið með ríkisstjórnarsamstarfið að gera. Þetta er ekki ríkisstjórnarmál eða stjórnarmál sem hefur það vægi, eins og hér hefur verið bent á, og hvað þá að maður fari að láta það stýra sér hér að þingmenn í nefndinni taki sig saman og flytji sitt mál, að því fylgi einhverjar þær leiðbeiningar að manni beri að styðja það. Það er augljóst að það er ekki og ekki hægt að fara fram á slíkt. Hvað þingmenn kjósa að gera þegar kemur að atkvæðagreiðslum um einstök þingmannamál sem koma fram með þessum hætti, eins og ég sagði áðan, það ræðst náttúrlega bara af sannfæringu þeirra sjálfra. Í mínu tilviki ræðst það af minni sannfæringu, stefnu flokksins og þeirri þekkingu sem ég tel mig hafa á málaflokknum.