154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:15]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið sem ég átta mig á að hann veitir samkvæmt sinni bestu sannfæringu. Og það er vel, það mættu svo sem fleiri gera hér í þingsal á tímum sem þessum. En það er ekki hægt að lesa annað út úr svarinu en að hér séu tveir ráðherrar, núverandi matvælaráðherra og fyrrverandi matvælaráðherra, sem hafa þá lagt fram og stutt mál sem gengur í berhögg við stefnu Vinstri grænna. Mig langar til þess í seinni umferð að beina sjónum aðeins að því — af því að hv. þingmaður talar um mikilvægi tímabindingar aflaheimilda vegna þess að þetta er náttúruauðlind en það er ekki eitthvað sem þingflokkur Vinstri grænna hefur stutt þegar fram hafa komið mál, m.a. frá þingflokki þeirra sem hér stendur. Viðreisn hefur ítrekað talað fyrir mikilvægi þess að nýting náttúruauðlinda sé tímabundin. Er þetta eitthvað sem þingflokkur Vinstri grænna hyggst styðja komi fram slík mál um tímabindingu náttúruauðlinda í framtíðinni?