veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Hér er undarlegasta mál sem ég hef séð á Alþingi Íslendinga síðan ég hóf störf hér í lok nóvember 2021. Ég vildi gjarnan geta fengið að tala í 14 tíma, taka einn góðan dagróður á strandveiðum til að ræða þetta mál, en því miður er tíminn mjög takmarkaður. Ég vil byrja á því að fara yfir rökin sem eru fyrir þessu frumvarpi. Þau eru engin. Það eru engir almannahagsmunir á bak við þetta. Það eru engin verndarrök. Það er ekki verið að vernda grásleppuna með kvótasetningu á grásleppu og það hefur komið skýrt fram í nefndinni, hjá sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og það kemur fram í nefndaráliti Flokks fólksins.
Framsögumaður nefndarálits meiri hlutans, hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, talaði mikið um fyrirsjáanleika, að fyrirsjáanleikinn væri númer eitt, tvö og þrjú í málinu. Mér leið eins og ég væri staddur í kommúnistaríki þar sem ætti að vera fimm ára áætlun með fyrirsjáanleika fimm ár fram í tímann en málið væri að aðilar sem fengju úthlutað framleiðsluleyfum mættu selja þau, framselja þau til annarra svo að þeir gætu grætt á því.
Það er atvinnufrelsi í landinu. Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum enda krefjist almannahagsmunir þess. Það eru engir almannahagsmunir fyrir þessari kvótasetningu, engir, ekki nokkrir einustu. Ef við værum fyrir dómstólum þá myndi ég bara að spila ræðu hv. formanns atvinnuveganefndar fyrir dómnum og þá myndi málið steinliggja. Það eru engin rök, ekki nokkur einustu. Það eru nauðsynlegar rekstrarlegar forsendur, færri aðilar vilja stunda þessar veiðar, vinnsluaðilar hafa kallað eftir þessu og við verðum að hafa fyrirsjáanleika. Það er ekki einu sinni veiðiskylda. Við getum úthlutað grásleppu og það veiðir þetta enginn en aðilar sem hafa ekki fengið úthlutað grásleppuheimildum eða kvóta, þá langar að fara og veiða en þeir geta það ekki. Það er engin skylda á aðilum sem fá úthlutað kvóta að veiða hann.
Flokkur fólksins er með breytingartillögu hvað þetta varðar sem ég vil mæla hér fyrir. Þar segir, með leyfi forseta:
„Óheimilt er að framselja eða leigja aflahlutdeild í grásleppu. Ef útgerð viðkomandi skips ætlar ekki að nýta aflahlutdeild skal aflahlutdeild skipsins endurúthlutað til annars skips.“
Í frumvarpinu er heimild til þess að framselja aflaheimild innan svæðis, innan Breiðafjarðarins. Ég veit að hámarkið er 1,5% af heildarúthlutun. En til hvers í ósköpunum eigum við að leyfa framsal í þessum málaflokki? Til hvers? Það eru engin rök fyrir því. Það er ekki verið að auka hagræði, það er ekki verið að tryggja samþjöppun eða neitt svoleiðis svo að það verði aukið hagræði. Það eru engin rök fyrir því, nema þau að ef einhver vill hætta þá getur hann selt sig út úr þessu. Og ef hann selur 40 tonn af grásleppukvóta þá fær hann 24 milljónir ef kvótinn er á 600.000 kr. Það er verið að búa til pening með löggjöfinni. Alþingi Íslendinga ætlar að búa til pening fyrir ákveðna aðila. Og hverjir eru þessir aðilar? Jú, þetta eru aðilarnir sem eru með umsagnir sínar og hafa verið að þrýsta á þingmenn og m.a. formann atvinnuveganefndar. Hann sagði í 1. umræðu að þess vegna væri þetta lagt fram.
Landssamband smábátaeigenda var með skoðanakönnun haustið 2018 meðal félagsmanna sem höfðu rétt til grásleppuveiða. Úrtakið var 451 einstaklingur. Þátttakan var 74,9%. Spurningin var: Hvort vilt þú frekar núverandi fyrirkomulag veiðistjórnunar eða aflamarks á grundvelli aflahlutdeildar sem ákvarðast af veiðireynslu 2013–2018, þar sem miðað verður við þrjú bestu árin? Svarið var að tæplega 55% vildu núverandi kerfi. Þeir vildu núverandi kerfi. Og það er rangt sem hefur verið haldið fram um skoðanakönnun sem er framkvæmd af hagsmunaaðilum, kvótaeigendum, hlutlægum aðilum í nefndaráliti með frumvarpinu, að það sé stór vilji meðal sjómanna að taka upp kvótasetningu. 55% sjómanna sem hafa grásleppuleyfi vilja þetta ekki. Þeir vilja þetta ekki.
Varðandi svæði eins og Stykkishólm, þar sem er mikill vilji til þess að kvótasetja þetta allt saman, allt heila bixið, þá get ég sagt að það hefði verið hægur vandi að breyta reglunum, breyta núverandi reglum til hagsbóta fyrir Breiðafjörðinn, til hagsbóta fyrir svæðið í kringum Stykkishólm, minnsta mál í heimi, ekkert mál, og tryggja að þeir gætu verið á strandveiðum og líka grásleppuveiðum. Og það hefði líka verið hægt að gera það þannig að virkir veiðidagar hefðu einungis verið virkir veiðidagar. En það var ekki gert. Nei, það á að nota löggjafarvald Alþingis Íslendinga til að búa til verðmæti sem hægt er að selja á opnum markaði til þeirra sem vilja kaupa sig inn í kerfið. Það er það sem verið er að gera. Þess vegna er svo mikilvægt að við komum í veg fyrir að það verði heimilt að framselja grásleppukvóta. Ég treysti því og trúi að þingmenn Vinstri grænna styðji þessar breytingartillögur og þingheimur nánast allur. Í þessu frumvarpi er verið að gefa litlum hópi manna verðmæti með kvótasetningu. Ekki gleyma því. Það er það sem er verið að gera og það er grundvallaratriði í þessu máli.
Mig langar að fjalla hér aðeins um umsagnir sem hafa komið vegna þessa máls. Strandveiðifélagið Krókur segir, með leyfi forseta:
„Strandveiðifélagið Krókur hefur í öllu ferli þessa máls hafnað öllum hugmyndum um kvótasetningu grásleppu og vísum við til fyrri umsagna okkar. Er ekki eitthvað meira aðkallandi og þarfara við tíma þingmanna að gera en fara af stað með umdeilt frumvarp sem eingöngu er ætlað að raka enn frekar að köku fárra inn í mjög svo umdeilt kvótakerfi? Vísar undirritaður að lokum í álit minnihluta atvinnuveganefndar, sem ritar svo um tilraunir til kvótasetningar fisktegundar sem ekki er ofveidd.“
Ekki ofveidd og samt er verið að kvótasetja. Allur grundvöllur kvótakerfisins byggir á verndun, að koma í veg fyrir ofveiði. Það er búið að gera það í 40 ár og síðasta fisktegundin sem á að kvótasetja: Nei, það eru ekki rök þar á bak við.
Samtök sveitarfélaga á Norðvesturlandi:
„Kvótasetning á grásleppu mun frá fyrsta degi leiða til gríðarlegrar samþjöppunar á aflaheimildum og takmarka mjög til frambúðar nýliðun innan smábátaútgerðar. […] Alþingi hefur sett fram markmið m.a. í Byggðaáætlun um jákvæða byggðaþróun um land allt og því er mikilvægt að koma í veg fyrir að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða vinni beinlínis gegn settum markmiðum í byggðamálum.“
Fulltrúi sveitarstjóra Djúpavogs sendi inn umsókn. Með leyfi forseta, segir í henni:
„Heimastjórn á Djúpavogi er andvíg kvótasetningu á grásleppu og telur að sú ráðstöfun komi m.a. í veg fyrir nýliðun í greininni.“ — Þeir hafna þessu algerlega.
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda segja að „kvótasetning grásleppu þjóni ekki tilgangi við verndun og uppgang hennar. Hún muni ekki verða til að leysa úr neinum þeirra úrlausnarefna sem hafa verið upp á borðum undanfarin misseri, hvorki verndun stofnsins né jöfn skipting veiða.“
Það er jöfn skipting í núverandi kerfi. Allir fá daga til að veiða og þeir sem veiða mest, það er undir þeirra hæfileikum komið.
Smábátafélag Reykjaness:
„Það frumvarp sem nú liggur fyrir verður að mínu mati stórslys verði það að lögum. […] Þrýstingur frá leyfishöfum sem hafa góða viðmiðun veiðiáranna er stærsta ástæðan fyrir kvótasetningunni.“
Þetta er stærsta ástæðan fyrir kvótasetningunni eins og Smábátafélag Reykjaness segir.
Landssamband smábátaeigenda:
„Landssamband smábátaeigenda leggst gegn kvótasetningu á grásleppu.“ — Þetta eru landssamtök smábátaeigenda sem eru að stunda þessar veiðar. — „LS hefur að vel athuguðu máli komist að þeirri niðurstöðu að veiðistýring á grásleppu með aflamarki svarar engu af því sem ekki er hægt að uppfylla í núverandi veiðikerfi.“
Það er hægt að breyta núverandi kerfi til að tryggja að þessi atvinnugrein lifi og haldi áfram. En nei, það á að leggja niður áratugamenningu, strandveiðimenningu, sem hefur byggst á grásleppuveiði. Meira að segja hérna við Ægisíðuna voru grásleppukarlar að veiða. Þessi menning er búin. Höfum það algerlega á hreinu. Það er búið spil með kvótasetningunni. Það eru meira að segja margir sem hafa áhuga á að tengjast sjónum á vorin með hrognkelsaveiðum en það verður ekki hægt í framtíðinni af því að þeir fá ekki kvóta til þess. Þeir verða að kaupa sig inn í kerfið, 600 þúsund kall tonnið, takk.
Það kemur fram hjá Landssambandi smábátaeigenda að magn veiða er takmarkað með fjölda veiðidaga, veiðarfæra og veiðileyfa.
Bjarni Svanur Kristjánsson: Atvinnuréttindi, keypt grásleppuleyfi á frjálsum markaði og hefur síðan farið í útgerð og stundað þessa veiði.
Þessu er algerlega hafnað. Svona má telja áfram og áfram. Það eru engin rök fyrir þessu. Þetta er klárlega brot á stjórnarskránni, á því að öllum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má eingöngu setja skorður með lögum enda krefjist almannahagsmunir þess. Einu rökin voru að þetta væri síðasta tegundin til að kvótasetja. Ég er hérna með svar til formanns Flokks fólksins, hv. þm. Ingu Sæland um kvótasettar nytjategundir sjávar. Í öllum litlu tegundunum sem hafa verið kvótasettar (Forseti hringir.) hefur minnkað veiði. Ef þig langar að drepa einhverja atvinnugrein (Forseti hringir.) þá skaltu kvótasetja minni tegundir. Og við erum að veiða 200.000 tonn, (Forseti hringir.) jafn mikið og fyrir 40 árum. Áratugina á undan vorum við að veiða 400.000 tonn. (Forseti hringir.) Þetta er dauðadómur yfir þessum veiðum, því atvinnufrelsi sem þessi atvinnugrein hefur notið innan grásleppuveiða.