veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið en vil koma hér upp og lýsa yfir stuðningi við þetta mál eins og nú er um það búið frá hv. atvinnuveganefnd. Ég tel að ýmsir vankantar, ef svo má segja, séu færðir til betri vegar með þeim breytingartillögum sem hér eru gerðar. Þetta mál hefur, eins og komið hefur fram í umræðunni, verið til umræðu alllengi og fyrst kemur það fram í tíð þáverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar.
Það skiptir allar atvinnugreinar máli að það sé fyrirsjáanleiki og festa í umhverfinu. Það er hárrétt sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson sagði hér áðan að sé einvörðungu horft til veiða þá er grásleppan alla jafna í nægu framboði í sjónum fyrir þá sem hana vilja sækja. En það er stærri mynd sem þarf að horfa á. Grásleppuveiðarnar skila ekki miklu ef markaðurinn virkar ekki, ef það er ekki einhvers lags jafnvægi. Það er auðvitað þannig að fyrir kaupendaendann á þessari virðiskeðju, fyrirtækin sem kaupa hrognin af sjómönnum, skiptir stöðugleikinn og fyrirsjáanleikinn enn meira máli heldur en fyrir þá sem sækja sjóinn, upp á það að byggja upp markað, viðskiptasambönd og þar fram eftir götunum. Þetta höfum við séð á þeim árangri sem náðst hefur með aflamarkskerfið í öðrum tegundum. Ef við horfum bara til þorsksins er það fjarri því að vera fullkomið en það er þó búið að skapa hér og byggja undir hagsæld sem íslenskt samfélag byggir á að stóru leyti.
Ég er ósammála hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni þegar hann segir hér áðan: Ef þú vilt drepa atvinnugrein þá skaltu kvótasetja hana. Það hefur sem betur fer gengið býsna vel í sjávarútvegi heilt yfir um alllangt skeið og sá viðsnúningur varð við innleiðingu aflamarkskerfisins. Ég held að það velkist enginn raunverulega í vafa um að sú nálgun sem þar er viðhöfð hefur skipt gríðarlega miklu máli og byggt að stórum hluta undir þá hagsæld sem við búum við í samfélaginu. Það er auðvitað þannig að hrognkelsaveiðar, veiðar á grásleppu, eru allt annars eðlis hvað umfang varðar heldur en ef við horfum til þorsksins. En prinsippin eru í grunninn þau sömu og m.a. þess vegna er ég fylgjandi því að þessi nálgun sé notuð.
Það kom fram í ræðu áðan að verið væri að færa verðmæti til fámenns hóps. Eins og nálgunin er hér í þessu frumvarpi er úthlutun byggð á veiðireynslu áranna 2018–2022, að frádregnu á árinu 2020, þannig að ef við segjum sem svo þá er þó verið að færa þessi verðmæti til þess hóps sem hefur verið að stunda þessa grein. Ég held að það hafi verið undir lok árs 2020, þá man ég að hingað í þinghúsið kom hópur grásleppusjómanna þar sem ríflega helmingur þeirra hvatti til þess að þessi leið yrði farin. En ég dreg ekki úr því að sjónarmið eru misjöfn, bæði milli félaga og innan svæða og síðan landið um kring. Ég held að reynslan af því að kvótasetja aðrar tegundir sé sem betur fer heilt á litið svo góð að ég held að við ættum að fara í þessa vegferð. Þeir sem munu öðlast réttindi á grundvelli þessarar lagasetningar eru þeir sem hafa verið að stunda þessar veiðar.
Mér segir svo hugur miðað við þá nálgun sem er sett hér upp varðandi stuðning við nýliðun að líkur séu til að allnokkurt gagn geti orðið af því og hlutfallið er, sýnist mér, ekki áberandi lágt sem á að verja til að styðja við nýliðun. Þannig að ég held að heilt á litið séu þær breytingartillögur sem hér eru lagðar til vel úthugsaðar, bæði hvað varðar bindingu á milli svæða, hámarkshlutdeild hvers aðila og með hvaða hætti hlutir eru festir á svæðum. Ég held að það sé skynsamlegt að viðmiðunarárin séu færð nær í tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, bara til þess að réttur einmitt þeirra sem hafa verið að stunda þessar veiðar undanfarið sé best tryggður. Síðan eru auðvitað sjónarmið um meðafla og þess háttar sem ég held að séu til bóta.
En í öllu falli held ég að þetta sé skynsamleg nálgun sem hér er viðhöfð. Hún er ekki gallalaus en ég held að kerfið um hrognkelsaveiðar verði betra að þessu regluverki innleiddu heldur en það er í dag og þá fyrst og fremst á grundvelli aukinnar festu sem þetta mun skila í rekstrarumhverfi veiðanna og þar af leiðandi tryggara framboði og jafnara til þeirra fyrirtækja sem á endanum þurfa síðan að byggja upp markaði sem varan sækir inn á.