154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:35]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann talaði um að það hefði tekist að byggja upp mikla hagsæld með kvótakerfinu. Mig langar að spyrja: Er hann að tala um hagsæld á Vestfjörðum? Hvar er þessi blessaða hagsæld? Er það á eyrunum á Vestfjörðum, sjávarbyggðunum þar? Ég hef ekki orðið var við það, satt að segja. Hagsældin núna á þessum stöðum er vegna sjókvíaeldis, laxeldis í kvíum.

Við erum eitt ríkasta samfélag heims en það er ekki eingöngu út af kvótakerfinu. Kvótakerfið fann ekki upp farsímann og tæknibreytingar o.s.frv.

Hv. þingmaður sagði að það sem skipti máli væri festa og fyrirsjáanleiki í rekstri, það væri mikilvægt fyrir kaupendaendann og að þetta væri rekstrarlegt spursmál. Spurningin er þessi: Eru þetta almannahagsmunir? Réttlætir það kvótakerfið að skapa fyrirsjáanleika eða að það sé festa í rekstrinum og kaupendaendinn geti séð þetta fyrir? Það má takmarka atvinnufrelsi ef það eru almannahagsmunir. Hérna er verið að takmarka atvinnufrelsi með þessum hætti, það er ekki jafnræði eins og í gamla kerfinu. En hvar eru almannahagsmunirnir fyrir þessari kvótasetningu? Og svo er annað, ef þú bannar framsal á aflaheimildum innan svæðisins þá skerðir það ekkert fyrirsjáanleika og það eru ekki þessir vankantar. Mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi fyrirsjáanleikann og tenginguna við framsal á kvóta. Framsal getur væntanlega ekki komið í veg fyrir fyrirsjáanleika. Hver eru rökin fyrir því að heimila framsal kvóta innan svæðis?