veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það má auðvitað segja að leyfi til hrognkelsaveiða séu undirorpin hinum hefðbundnu gömlu góðu grásleppuleyfum sem hafa verið viðhöfð um langa hríð, þannig að það er auðvitað takmarkað aðgengi á þeim grunni nú þegar. Ef hv. þingmaður er algerlega á móti slíkri nálgun þá verð ég að spyrja á móti: Hafa komið fram tillögur um að afnema þá nálgun þannig að ég gæti bara skellt mér út hvenær sem er og hafið þær veiðar? Ég held að það sé enginn að hugsa um það en punkturinn er sá sami. Það er auðvitað ákveðin takmörkun á aðgengi gagnvart þessu vegna þess kerfis sem viðhaft er í dag.
Hv. þingmaður spyr: Hvar er hagsældin? Hvar er hún á grundvelli aflamarkskerfisins, kvótakerfisins? Og hann spurði hvort hún væri vestur á fjörðum. Eins og ég kom inn á í ræðu minni áðan er kvótakerfið ekki gallalaust og byggðafestuhlutinn er kannski sá hluti sem helst hefur verið gagnrýndur en er kannski að einhverju marki sá sársaukafulli hluti kerfisins sem þurfti að eiga sér stað til að komast út úr tímabili ofveiði og gegndarlauss langtímatapreksturs, því miður, í greininni í heild sinni þar sem gengisfellingar, sem við þekkjum öll, voru allt of algengar til að styðja við þá starfsemi. Ég get nefnt staði eins og Bolungarvík (Forseti hringir.) þar sem hagsæld er sem betur fer býsna mikil og hefur gengið vel. En það er auðvitað misskipt á milli svæða, (Forseti hringir.) ég dreg ekki dul á það.