154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Vissulega er Bolungarvík frábær staður og þeir hafa verið duglegir þar. Ef ég man rétt var það innan dagakerfisins sem þeir stóðu sig alveg frábærlega í veiði í þeim frjálsu tegundum sem þar voru og byggðu sig upp. Svo er náttúrlega núna komið sláturhús í sjávareldinu. Hv. þingmaður talaði um að sjómenn sem væru núna innan kerfisins vildu þetta en skoðanakönnun Landssambands smábátaeigenda sýnir að 55%, og ég kom inn þetta á í ræðu minni, væru fylgjandi núverandi kerfi. Ég tel að það hefði verið möguleiki að bæta núverandi kerfi, fjölga dögum, taka tillit til svæða eins og Breiðafjarðarins, í kringum Stykkishólm.

Það hringdi í mig sjómaður í morgun. Hann ætlaði 100% að kaupa bát kæmist hann á grásleppuveiðar í núverandi kerfi, þá ætlaði hann að vera á grásleppunni og fara svo í strandveiðarnar. Núna er hann hættur við. Ég talaði við annan í morgun. Hann sagði við mig: Ég er búinn að fjárfesta í útbúnaði til grásleppuveiða en ég var bara í grásleppuveiðum í fyrra. Ég vil fara inn í þetta í framtíðinni. Ég get það ekki núna. Ég þarf að kaupa mig inn. Hann getur prófað að fara kannski í nýliðapottinn, rembast við það, en það breytir ekki innkomunni í kerfið, það er búið að loka kerfinu, það er búið að kartelísera kerfið, það er búið að loka því.

Spurning mín tengist breytingartillögu sem ég er með um að framsal verði ekki leyft innan svæðanna. Ef þú veiðir ekki þá bara skilar þú inn kvótanum. Og allur þessi fyrirsjáanleiki og það, ég er að reyna að sjá það góða í þessu, fyrirsjáanleikinn, festan, kaupendaendinn og svoleiðis — ef einstaklingur ætlar að hætta í kvótakerfinu þá bara skilar hann inn kvótanum. Af hverju á hann að fá heimild til að selja verðmæti sem ríkið úthlutar honum með þessum hætti? Framsalið var t.d. leyft á sínum tíma til að auka hagkvæmni, samþjöppun í kerfinu, (Forseti hringir.) að það kæmu stór og sterk útgerðarfyrirtæki. Það á ekki við í grásleppunni. (Forseti hringir.) Á ekki að banna framsalið?