veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið, til að koma beint að því, er að almennt tel ég skynsamlegt að viðhafa heimild til framsals á réttindum sem þessum. Það hefur heilt yfir reynst vel í öðrum kvótasettum tegundum og ég tel að allar líkur séu til þess að það verði með sama hætti í þessu. Síðan endurspegla auðvitað verðmæti þessara réttinda á endanum þá arðsemi sem verður af veiðunum til lengri tíma litið. Það eru auðvitað miklar takmarkanir á heildarkvóta hvers aðila, miklu þrengri heldur en í aflamarkskerfum annarra tegunda. Þannig að ég myndi ekki sjá ástæðu til að leggjast gegn framsalinu eins og því er stillt upp í þessu frumvarpi.