154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[00:44]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Núverandi fyrirkomulag veiðistjórnar þegar kemur að grásleppuveiðum er ekki fullkomið en það breytir ekki því að við í Samfylkingunni getum ekki stutt þetta mál. Það hafa ekki verið færð sannfærandi rök fyrir því að þetta sé besta leiðin að þeim markmiðum sem að er stefnt.

Það sem mig langar að gera aðeins að umtalsefni er sá málflutningur sem hefur verið viðhafður hér í salnum í kvöld er lýtur að aðdraganda málsins og hvernig þetta kom til allt saman. Það hefur svolítið verið talað eins og málið hafi bara slysast einhvern veginn hingað inn, að þetta sé bara eitthvert þingmannamál sem einhverjir örfáir einstaklingar í atvinnuveganefnd beri ábyrgð á og hafi lagt fram. Auðvitað er það ekki þannig. Það er sama í hvaða búningi málið nákvæmlega er, hvaða nöfn eru á því, hverjir munu á endanum styðja þetta mál, þá er þetta ríkisstjórnarmál. Þetta er mál sem þessir þrír stjórnmálaflokkar bera ábyrgð á að er komið þessa leið í þessum sal og í þessu húsi.

Hv. þm. Bjarni Jónsson fjallaði hér sérstaklega um málið út frá stefnu Vinstri grænna. Það hefur faðir hans einnig gert, Jón Bjarnason, fyrrverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra, sem á stóran þátt í því að smábátafyrirkomulaginu eins og við þekkjum það var komið á fót. Það frumvarp sem hér er til umfjöllunar var auðvitað fyrst lagt fram af matvælaráðherra Sjálfstæðisflokksins en á síðasta löggjafarþingi var það matvælaráðherra Vinstri grænna sem flutti sambærilegt mál. Hér er hins vegar um að ræða þingmannamál, mál frá meiri hluta atvinnuveganefndar. Þar er þingflokksformaður Vinstri grænna einn af þeim sem flytur málið, einn af þeim sem stendur að því. Auðvitað er það þannig að þegar mál er komið alla þessa leið, þegar máli er hleypt út úr nefnd, þá gerist það fyrir tilstuðlan þeirra flokka sem fara með meiri hluta hverju sinni. Hér eru það Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn. Sama hverjir nákvæmlega standa að málinu og undirrita nefndarálit þá er það á ábyrgð stjórnarflokkanna að þetta mál ratar út úr nefnd. Og það sem meira er, nú hefur það líka ratað í gegnum þinglokasamninga. Það er staðan þrátt fyrir að stór hluti stjórnarandstöðunnar hafi gert athugasemdir við og kallað eftir því að þetta mál yrði ekki eitt af þeim sem yrði afgreitt. Þetta er komið á þennan stað vegna þess að það var auðvitað á endanum áhersla margra flokka að málið fengið framgang.

Þetta er því ríkisstjórnarmál. Það eru þessir þrír flokkar sem bera ábyrgð á þessu máli og auðvitað þeir flokkar sem kjósa á endanum að styðja það. Og þá breytir engu í hvaða búningi málið nákvæmlega er. Ég vildi bara rétt halda þessu til haga hér vegna þess hvernig fjallað hefur verið um málið og tilurð þess.