154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[00:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Þetta nefndarálit er frá meiri hluta velferðarnefndar. Nefndin fjallaði um málið, fékk til sín gesti til fundar og fékk umsagnir um málið. Það má kynna sér nánar í þingskjalinu sem er þessari ræðu og þessu nefndaráliti til stuðnings.

Framlagning frumvarpsins er hluti af þeim aðgerðum sem lagðar voru fram af hálfu ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára. Gert er ráð fyrir að hámarksgreiðslur samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof hækki úr 600.000 kr. í 900.000 kr. í þremur áföngum. Er aðgerðunum ætlað að treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna og stuðla að því að markmið fæðingarorlofskerfisins um samvist barna við foreldra og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs nái fram að ganga.

Frú forseti. Með frumvarpinu er lagt til að framangreindar hækkanir á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði taki til þeirra foreldra barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir 1. apríl 2024. Þá er lagt til að hækkanir á hámarksgreiðslum samkvæmt lögum um sorgarleyfi taki til foreldra í sorgarleyfi vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts frá og með 1. apríl til og með 31. desember 2024. Með samræmdri hækkun á greiðslum samkvæmt lögum um sorgarleyfi annars vegar og fæðingar- og foreldraorlof hins vegar er komið í veg fyrir að foreldrar sem verða fyrir barnsmissi á þeim tíma sem þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs verði fyrir tekjufalli við það að fá greiðslur í sorgarleyfi eftir barnsmissi í stað þess að fá áframhaldandi greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Við umfjöllun málsins komu fram sjónarmið um að miða ætti hækkanir á hámarksgreiðslum við þá foreldra sem eiga réttindi til greiðslna eða þiggja greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði 1. apríl 2024. Með því yrði m.a. komið í veg fyrir að foreldrar barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fyrir þá dagsetningu hljóti lægri greiðslur en foreldrar þeirra barna sem fæðast eftir þann dag. Þá komu fram sjónarmið um að hækkanir á hámarksgreiðslum ættu að miða við það tímamark sem þeir kjarasamningar sem frumvarpi þessu er ætlað að styðja við voru undirritaðir. Að öðrum kosti yrðu þeir foreldrar barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fyrir 1. apríl fyrir kjaraskerðingu miðað við aðra sem eru á vinnumarkaði við gildistöku laganna. Auk þess kemur fram í sameiginlegri umsögn BHM og BSRB að samtökin telji eðlilegt að hækkun sú sem frumvarpið kveður á um taki gildi 1. janúar 2024 í stað 1. apríl.

Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 17. maí 2024, er fjallað um gildandi löggjöf að því er viðkemur hækkunum á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Að minnsta kosti frá árinu 2000 hafi verið miðað við að hækkanir hámarksgreiðslna eigi við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með tiltekinni dagsetningu. Þannig hafi verið gætt jafnræðis milli foreldra sem eignast börn á sama degi þar sem þeir eigi sama rétt innan kerfisins. Þá segir að verði framangreindar breytingar gerðar á frumvarpinu mætti ætla að foreldrar geti átt rétt á misháum hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eftir því hvenær þeir kjósa að nýta rétt sinn innan kerfisins. Það foreldri sem nýtir réttinn strax eftir fæðingu, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur gæti þannig fengið lægri greiðslur en það foreldri sem nýtir réttinn seinna. Slík breyting gæti einnig orðið til þess að foreldrar, aðallega feður, fresti því að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs í því skyni að fá hærri greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði og að slík ráðstöfun gangi gegn meginmarkmiðum laga um fæðingar- og foreldraorlof þess efnis að tryggja barni samvist við báða foreldra.

Þetta vó meiri hlutinn og mat og tekur undir þessi sjónarmið að hluta. Þær hækkanir sem lagðar eru til með frumvarpinu eru mikilvægar til þess að draga úr áhrifum þeirra búsifja sem barnafjölskyldur hafa orðið fyrir vegna verðbólgu og hás vaxtastigs. Þar sem gert er ráð fyrir að hækkanirnar sem lagðar eru til gildi vegna barna sem fæðast 1. apríl 2024 eða síðar felur frumvarpið nú þegar í sér tiltekna afturvirkni. Verður ekki séð að neikvæðir hvatar raungerist verði sú hækkun látin gilda um þá sem eiga rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir þann dag, hið sama á við um þá sem eiga rétt til greiðslna í sorgarleyfi. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á orðalagi 1. og 2. gr. frumvarpsins þess efnis að hækkun hámarksgreiðslna í 700.000 kr. gildi um foreldra sem eiga rétt til greiðslna fæðingarorlofs, eftir 1. apríl 2024, vegna barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur fyrir 1. janúar 2025. Sama breyting er lögð til vegna foreldra sem eiga rétt til greiðslu sorgarleyfis á sama tímabili.

Almennt hefur verið gert ráð fyrir því að breytingar á hámarksfjárhæðum sem fram koma í fyrrnefndum lögum séu gerðar með birtingu reglugerða en ekki lagabreytingum, sbr. 54. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof og 33. gr. laga um sorgarleyfi. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ráðherra geri ráð fyrir að breytingar á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði um áramótin 2024/2025 og 2025/2026 verði gerðar með reglugerð.

Meiri hlutinn leggur til breytingu þess efnis að þær hækkanir sem mælt er fyrir um í greinargerð verði sérstaklega lögfestar. Breytingin er útfærð með þeim hætti að hámarksgreiðslur samkvæmt lögunum hækki og verði 900.000 kr. Þá verði í ákvæðum til bráðabirgða við lögin kveðið á um sérstakt hámark sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. desember 2024 annars vegar og 1. janúar 2025 til og með 31. desember 2025. Þannig verður mánaðarleg hámarksgreiðsla 900.000 kr. fyrir fæðingarorlof vegna barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2026 og fyrir sorgarleyfi vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts frá og með 1. janúar 2026. Það er því ákveðin stighækkun sem verður með þessum breytingum.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert er ráð fyrir að breytingar á hámarksgreiðslum þeirra foreldra sem nýta rétt sinn til sorgarleyfis vegna barnsmissis, andvanafæðingar eða fósturláts frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024 hafi í för með sér óverulegan kostnaðarauka fyrir ríkissjóð, eða um 1,5 millj. kr. miðað við útgjöld á árinu 2023. Þá er áætlað að kostnaður við hækkun á mánaðarlegri greiðslu Fæðingarorlofssjóðs úr 600.000 kr. í 700.000 kr. til foreldra í fæðingarorlofi vegna barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024 verði um 400 millj. kr.

Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að verði gerð sú breyting að hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eigi við um alla foreldra sem nýta rétt sinn innan kerfisins frá og með 1. apríl 2024 sé gert ráð fyrir að kostnaður vegna gildistöku frumvarpsins verði á bilinu 220–540 millj. kr. vegna ársins 2024.

Vegna þeirrar afturvirkni sem breytingartillögur meiri hlutans fela í sér er lögð til breyting á gildistökuákvæði frumvarpsins til að auka skýrleika.

Frú forseti. Meiri hluti velferðarnefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér gert grein fyrir og eru skrifaðar út í nefndaráliti því sem fylgir þessari ræðu. Undir þetta nefndarálit rita sú er hér stendur og hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir og Óli Björn Kárason. Hv. þm.Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.