fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá minni hluta velferðarnefndar um breytingar á fæðingarorlofslögum, mál sem er lagt fram í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og felur í sér hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi. Framsögumaður meiri hlutans, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, fór vel yfir efnisatriði málsins og þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til á því. Ég sem fulltrúi Samfylkingar í velferðarnefnd og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, hv. þingmaður Pírata, kusum að skrifa ekki undir álit meiri hlutans en leggja til aðrar og viðameiri breytingar á málinu sem ég ætla að gera nokkuð ítarlega grein fyrir hér í þessari ræðu.
Þá vil ég byrja á því atriði sem hefur kannski fengið einna mesta athygli og umfjöllun í tengslum við þetta mál. Það er sú staðreynd að hér er lagt til að hækkun á hámarki fæðingarorlofsgreiðslna — sem gerist í þremur skrefum eins og var farið yfir, fyrst í apríl á þessu ári, afturvirkt, svo 1. janúar 2025 og loks 1. janúar 2026 þegar hækkunin verður komin upp í 900.000 kr — miðist við fæðingardag barns. Þannig er það í frumvarpinu eins og það var lagt fram á Alþingi.
Þegar verið er að hækka þakið í svona stórum stökkum, vegna þess að það hefur rýrnað að raunvirði á undanförnum árum, staðið í stað um margra ára skeið, þá vakna spurningar um jafnræði og sanngirni, hvort það sé forsvaranlegt að einn dagur eða nokkrar klukkustundir eða mínúta ráði úrslitum um það hvort fjölskylda fái 600.000 kr. eða 700.000 kr. á mánuði út úr Fæðingarorlofssjóði. Munurinn er 1,2 milljónir á ársgrundvelli. Er kannski sanngjarnara að hækkun eins og þessi taki til allra foreldra sem eru í fæðingarorlofi frá og með þeim degi sem hækkunin tekur gildi? Það er afstaða hátt í 4.000 foreldra og stuðningsmanna þeirra sem hafa ritað undir yfirlýsingu og áskorun til Alþingis um að breyta gildistökureglunum í frumvarpinu.
Um þetta var fjallað talsvert hér í þingsal í 1. umræðu og á vettvangi velferðarnefndar. Í 1. umræðu lýstu flestir þingmenn sem tóku til máls sig sammála þeirri nálgun sem lögð er til og kallað er eftir í þessari áskorun til Alþingis. Þetta hefur verið eitt af stóru viðfangsefnum nefndarinnar og verið kallað eftir áliti frá umsagnaraðilum um þetta. Meiri hluti nefndarinnar komst að ákveðinni niðurstöðu og hún var kynnt hér fyrir þremur dögum og lögð fram í formi nefndarálits sem gerð var grein fyrir rétt í þessu. Samkvæmt þeirri tillögu mun fyrsta hækkunin af þremur taka til allra foreldra í fæðingarorlofi en málum verður háttað með öðrum hætti í seinni tveimur hækkununum, 1. janúar 2025 og 1. janúar 2026. Þá verður miðað við fæðingardag barns. Þetta þýðir að foreldrar sem eignast barn seinna á þessu ári en eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði árið 2025 verða í lakari stöðu heldur en foreldrar sem eignast barn eftir 1. janúar 2025. Breytingartillaga meiri hlutans kemur aðeins til móts við þau sem eru í fæðingarorlofi núna en þeir foreldrar sem eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eftir 1. janúar 2025 en hafa eignast barn fyrir þá dagsetningu munu ekki njóta frekari hækkana. Afleiðingin er sú, eins og ég fór yfir áðan, að foreldrar sem eignast barn með eins dags millibili, hvort sínum megin við næstu áramót og áramótin þar á eftir, munu njóta gjörólíks réttar til hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi á sama tíma. Önnur fjölskyldan er 1,2 milljörðum betur sett en hin ef fæðingarorlofið er fullnýtt. Ég geri mér grein fyrir því að svona hefur gildistökunni verið háttað þegar greiðslurnar hafa hækkað í gegnum tíðina en það breytir ekki því að ég hef komist að þeirri niðurstöðu, og var raunar strax þeirrar skoðunar þegar málið var rætt hér í 1. umræðu, að þetta sé ósanngjarnt.
Ég ætla að byrja á því að vekja athygli á sjónarmiðum sem komu fram í umsögninni sem barst frá Höllu Kristjánsdóttur fyrir hönd þeirra sem rituðu undir yfirlýsinguna. Þar koma fram sjónarmið sem eru umhugsunarverð í þessu samhengi, með leyfi forseta:
„Þegar notast er við fæðingardag getur það m.a. skapað streitu hjá barnshafandi konu sem vonast eftir því að falla „réttu megin“ við línuna. Keisaraskurðir og gangsetningar eru jafnvel frekar bókaðar eftir umrædda dagsetningu sem setur óþarfa álag á heilbrigðiskerfið á ákveðnum tíma. Slíkt gerðist t.a.m. um áramótin 2020/2021 þegar fæðingarorlof var lengt úr 10 mánuðum í 12 mánuði. Þegar kona nálgast lokametra sinnar meðgöngu er mikilvægt að hún upplifi sig örugga, að hún sé ekki undir álagi, að hún hvílist og safni kröftum fyrir eitt stærsta verkefni sem hún mun takast á við á sinni lífsleið. Hún á ekki að þurfa að hafa áhyggjur afþví að barnið fæðist á „réttri dagsetningu““.
Þetta er umhugsunarvert og mér finnst að þessi sjónarmið hljóti að vega þungt. Þetta er ekki bara sanngirnis- og jafnræðissjónarmið heldur er þetta líka að einhverju leyti heilsufarslegt sjónarmið sem varðar það hvernig fólki líður á þessum viðkvæmu og stórkostlegu stundum. Svo held ég að það megi líka skoða þessi ákvæði um gildistöku hækkana með tilliti til þess að í stjórnarskrá er mælt fyrir um bann við mismunun. Þetta er regla sem er almennt viðurkennt að felur ekki í sér fortakslaust og algilt bann. Til að mismunun teljist lögmæt þarf einstaklingur í fyrsta lagi að hafa hlotið aðra meðferð en einstaklingur í sambærilegri stöðu, í öðru lagi þarf hin mismunandi meðferð að stefna að lögmætu markmiði og skynsamlegt samræmi þarf að vera á milli hinnar ólögmætu meðferðar og þess markmiðs sem ná skal fram með meðferðinni. Ég ætla ekkert að þykjast geta kveðið upp úr einhvern dóm um þetta og finnst hallærislegt svona almennt að vera mikið að veifa stjórnarskránni nema það sé ríkt tilefni til. Oftast er bara betra að flytja rök hér í þessum sal út frá pólitíkinni. Engu að síður kýs ég að orða það svo í nefndaráliti:
„Minni hlutinn telur að ekki sé hægt að slá því föstu að lagasetning þar sem mælt er fyrir um stórkostlegan mun á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra eftir því hvorum megin tiltekinnar dagsetningar barn fæðist uppfylli þau skilyrði sem fyrir hendi þurfa að vera til þess að mismunun teljist lögmæt.“
Þegar hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra mælti fyrir þessu frumvarpi hér á Alþingi þá lýsti hann þeirri afstöðu að það væri nauðsynlegt að miða hámarksgreiðslur við fæðingardag barns til að gæta jafnræðis milli foreldra. Það væri mikilvægt að sömu reglur giltu hvað varðar mánaðarlegar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði fyrir alla foreldra sem eignast, frumættleiða eða taka barn í varanlegt fóstur eftir tiltekið tímamark, óháð því hvenær þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Svo hafa komið fram sams konar rök af hálfu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins við meðferð málsins í velferðarnefnd; að mikilvægara sé að það ríki algjört og fullkomið jafnræði til þessara hámarksgreiðslna innan hvers og eins parasambands, óháð því hvenær foreldrarnir taka fæðingarorlof, heldur en að sá möguleiki geti verið fyrir hendi að annað foreldrið njóti á einhverjum tímapunkti hærri greiðslna en hitt foreldrið. Í þessu samhengi má hafa í huga að flestir foreldrar sem taka fæðingarorlof eru í sambúð eða hjúskap og hafa því sameiginlegar heimilistekjur og að hækkun hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði kemur sér í flestum tilvikum vel fyrir fjölskyldur og báða foreldra, óháð kyni. Auk þess er ljóst að kona sem tekur fæðingarorlof á fyrstu mánuðum eftir að hún eignast barn myndi sannarlega njóta hækkunar á hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði sé barn hennar fætt skömmu áður en þær hækkanir sem kveðið er á um í frumvarpinu taka gildi. Auk þess verður ekki alveg séð hvers konar kynjajafnrétti er fólgið í þeirri niðurstöðu að kona sem eignast barn einum degi fyrir gildistöku umræddra hækkana njóti umtalsvert lakari kjara heldur en faðir sem eignast barn þann dag sem hækkanir taka gildi. Það er því mjög auðvelt að teikna upp aðstæður þar sem öllu kynjajafnrétti er snúið algjörlega á hvolf.
Svo skulum við bara staldra aðeins við og velta því fyrir okkur hvernig hækkunum í velferðarkerfinu er almennt háttað. Þegar það verða t.d. hækkanir á örorkulífeyri eða þegar hækkanir verða á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði ná þær til allra sem eiga rétt á greiðslunum, óháð því t.d. hvenær einhver missti starfsgetumat eða fékk örorkumat eða hvenær einhver missti vinnuna. Það gengur bara yfir alla sem eiga þennan rétt. Mér finnst ekki hafa verið rökstutt fyllilega hvers vegna það ættu einhver önnur lögmál að gilda þegar kemur að stuðningi við foreldra ungbarna en ég óttast að svona sérreglur um hækkanir sem ákveðnir foreldrar bera hallann af geti á endanum, alveg sama þótt það sé jafnvel rökstutt út frá kynjajafnréttissjónarmiðum, komið verst niður á mæðrum. Það er frekar konan sem tekur fæðingarorlofið. Það er nú bara þannig. Það að halda aftur af hækkunum og setja svona takmarkandi reglur grefur undan þeim markmiðum sem er hugsanlega stefnt að eða þetta rökstutt út frá, enda nýta konur og mæður fæðingarorlofsréttinn miklu meira heldur en feðurnir. Þá komum við að því að hækkun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi er einmitt svo oft rökstudd með því að þannig megi hvetja báða foreldra til að fullnýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Aukin nýting feðra á fæðingarorlofi er mikilvægt jafnréttismál og ég held að ráðamenn ættu að róa að því öllum árum að fleiri feður fullnýti réttinn sinn til fæðingarorlofs.
Við í minni hlutanum bendum á að með því að miða við fæðingardag í því skyni að girða fyrir að í einhverjum tilvikum geti feður fengið hærri greiðslur en mæður, því að það virðist vera tilgangurinn, þá sé ekki bara verið að útiloka feður frá hækkun heldur líka mæður sem eignast barn fyrir gildistíma hækkunarinnar. Allt að einu er niðurstaðan sú að hækkun miðað við fæðingardag barns, frekar en hækkun sem tekur til allra, er til þess fallin að útiloka fjölda foreldra, óháð kyni, frá þeirri kjarabót sem felst í frumvarpinu. Og eins og ég nefndi hér í upphafi þá eiga þær breytingar sem hér er mælt fyrir um rætur að rekja til kjarasamninga á vinnumarkaði sem taka eðli máls samkvæmt til alls launafólks sem heyrir undir viðkomandi kjarasamninga. Á sama hátt teljum við í minni hlutanum engin rök hníga til þess — eða engin skynsamleg rök, ég hef a.m.k. reynt að hrekja þau rök hér — að eingöngu hluti foreldra sem eru í fæðingarorlofi njóti þeirra hækkana sem mælt er fyrir um í frumvarpinu.
Það kemur fram í greinargerð að tilgangur þessarar hækkunar sé að treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna en það er deginum ljósara að þessum tilgangi verður síður náð ef aðeins sumir foreldrar njóta hækkunar en ekki allir sem eiga rétt á fæðingarorlofsgreiðslum, enda breytir fæðingardagur barns engu um fjárhagsstöðu foreldra. Foreldrar sem eignast barn, hvort sínum megin við einhvern dag, búa við nákvæmlega sömu verðbólguna, launaþróunina, verðlag og vexti. Þannig er það nú bara. Ég held að það skjóti einfaldlega skökku við að einn dagur eða jafnvel örfáar mínútur geti ráðið úrslitum um það hvort foreldrar, sem eru að öðru leyti á nákvæmlega sama tíma í orlofinu, njóti hækkunar upp á 1,2 milljónir á ári.
Hvers vegna er þetta svona eldfimt? Hvers vegna eru þetta þær spurningar sem hefur verið fjallað einna mest um, bæði í þessum sal og í fjölmiðlum og greinum sem maður hefur séð að undanförnu? Það er kannski vegna þess að hér er verið að leiðrétta svo mikla raunrýrnun sem hefur orðið á löngum tíma og hefur ekki verið fullleiðrétt. Jú, jú, það var þarna hækkun 2019. Svo hefur þetta staðið í stað síðan. Það er verið að leiðrétta þetta með stórum stökkum og þá vakna þessar spurningar. Ef hámark fæðingarorlofsgreiðslna hefði fylgt verðlagi eða launaþróun hækkað bara lítillega á hverju ári þá stæðum við ekki frammi fyrir þessum spurningum.
Í þessu samhengi vil ég nefna að skýrt er kveðið á um það í 54. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof að fjárhæðir greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði skuli koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála. Þetta stendur í lögunum, í 54. gr., og þetta stóð líka í eldri lögum. Þar var sambærilegt ákvæði um reglulegar hækkanir. Ráðamenn hafa einfaldlega umgengist þessa reglu af ótrúlegri léttúð. Til að mynda hefur hámarkið staðið óbreytt síðan 2019 þrátt fyrir gríðarlega verðbólgu og miklar launahækkanir. Árin 2005–2023 hækkaði launavísitala tífalt á við hámark fæðingarorlofsgreiðslna. Verðlagsvísitala hækkaði sexfalt á við hámarkið. Bandalag háskólamanna bendir á þetta í umsögn um frumvarpið mitt um breytingar á fæðingarorlofslögum. Rýrnun hámarksins nemur 65% á við launavísitölu árin 2005–2023 og um 50% af kaupmætti. Í tíð ríkisstjórnar Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna á árunum 2017–2023 lækkaði hámarkið um rúmlega 20% á við launavísitölu og dróst saman um rúmlega 10% í kaupmætti.
Niðurstaðan af þessu er sú að hámark fæðingarorlofsgreiðslna hefur aldrei verið lægra í hlutfalli við launavísitölu heldur en árið 2023. Þetta er staðan. Hefði það haldið verðgildi sínu gagnvart verðlagi, frá síðustu hækkun árið 2019, þá væri það í dag meira en 800.000 kr. á mánuði. Við skulum hafa í huga í þessu samhengi að meðalheildarlaun fullvinnandi fólks á vinnumarkaði voru 935.000 kr. á mánuði árið 2023 og þessi hækkun úr 600.000 upp í 700.000 kr. sem er mælt fyrir um kostar 400 millj. kr. Með hliðsjón af þessari miklu raunrýrnun sem hér hefur orðið leggjum við í minni hlutanum til að hámarkið hækki strax í 800.000 kr. — ekki í 700.000 kr. Við leggjum líka til, til þess að forðast þessi stóru óþægilegu stökk, að eftir þriðju hækkunina árið 2026 taki gildi sú regla að ákvörðun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi og annarra fjárhæða í fæðingarorlofskerfinu taki mið af launaþróun, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Loks leggjum við til breytingu sem miðar að því að tryggja betur rétt foreldra sem glíma við veikindi í tengslum við meðgöngu.
Það er nefnilega þannig, og þetta vakti athygli okkar þegar við fórum að skoða lögin og um þetta var fjallað nýlega í ágætri grein á visir.is eftir Jóhann Óla Eiðsson, að í núverandi lagaumhverfi fellur rétturinn til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu niður við fæðingu barns. Þetta verður að teljast óeðlilegt í ljósi þess að oftast vara veikindi áfram í nokkurn tíma eftir fæðingu. Þess vegna leggjum við til þá breytingu að réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns verði tryggður á sama hátt og veikindi vegna fæðingar barns. Þetta leggjum við til í breytingartillögum sem fylgja nefndaráliti þessu. Undir álitið ritum við, Jóhann Páll Jóhannsson og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.