fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég stóðst ekki mátið að koma upp í andsvar við hv. þingmann sem mælti hér fyrir nefndaráliti minni hluta og færði þar fram rök fyrir sínum breytingartillögum. Mér fannst hv. þingmaður tala eins og ekkert hafi verið gert í fæðingarorlofsmálum í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem er auðvitað kolrangt þar sem fæðingarorlofið var lengt úr tíu mánuðum í 12 mánuði 1. janúar 2021. Mér finnst bara mikilvægt að halda því til haga nú þegar við ræðum þetta mál sem í mínum huga er gríðarlega jákvætt vegna þess að með því er verið að hækka hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði.
Mig langar að spyrja hv. þingmann vegna ræðu hans: Eins og ég rakti í mínu máli og hefur komið fram þá hefur sú aðferð verið viðhöfð mjög lengi að miða við fæðingu barns þegar kemur að greiðslum til þess að tryggja ákveðið jafnræði og svo má alveg færa rök fyrir því hvort það ætti að gera öðruvísi, en telur hv. þingmaður að það sé rétt að gera grundvallarbreytingu á því hvernig við höfum viðhaft fæðingarorlofskerfið okkar hingað til? Mér finnst það í það minnsta vekja upp spurningar um margt. Þannig að mig langar að heyra (Forseti hringir.) hvað hv. þingmaður segir um það.