fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mér finnst þetta áhugavert því að hér eru að koma fram myndi ég segja ansi stórar breytingar á því hvernig við höfum hagað okkar fæðingarorlofskerfi. Ég ætla að vera sammála hv. þingmanni í því að ég tel æskilegra að hámarksgreiðslur hækki jafnt og þétt á sama tíma og ég fagna því að nú sé gengið í það að hækka greiðslurnar, og það dálítið verulega, og mér finnst mikilvægt að við höldum athygli á því að það er auðvitað meginmergurinn málsins hér.
Mig langar að inna hv. þingmann aðeins meira eftir því hvers vegna hann telji að breytingar á kerfinu, sem hafa einmitt reynst gríðarlega vel til þess að treysta hér jafnrétti, til þess að bæði feður og mæður fari í fæðingarorlof, þar sem við erum að ná gríðarlega góðum árangri á heimsvísu, hvers vegna hann telji þetta verða til bóta. Ég hef einmitt litið svo á að með því hvernig við höfum miðað greiðslurnar þá viti foreldrar nákvæmlega að hverju er gengið og að þau sem eru að fá greiðslur á sama tíma séu að fá sömu greiðslurnar. Mér finnst þetta skipta máli. Vegna þess að hv. þingmaður talaði um jafnræði hér áðan þá er jafnræði í kerfinu eins og það er núna (Forseti hringir.) og það finnst mér mikilvægt.