fæðingar- og foreldraorlof og sorgar leyfi.
Virðulegi forseti. Ég færði áðan fram ákveðin jafnræðissjónarmið út frá þeirri leið sem ég tel heppilegast að fara. Ég tel að þau, auk þeirra heilsufarslegu sjónarmiða sem ég fór líka yfir, vegi einfaldlega þyngra heldur en þessi, hvað skal segja, þröngi fókus á jafnræði í gagnkynja parasambandi. Fæðingarorlofskerfið á Íslandi er um margt mjög gott og hefur reynst vel en ég held að þessi þáttur, að hækka á margra ára fresti í stórum stökkum og miða þar við fæðingardag barns, sé ekki einn af þeim eiginleikum sem hefur komið okkur langt á sviði kynjajafnréttis. Ég er einfaldlega sannfærður um það. Ég held að það sé ekki eitthvert aðalsmerki okkar fæðingarorlofskerfis eða það sem gerir það betra en fæðingarorlof margra annarra ríkja að miðað sé við fæðingardag barns og að hækkanir verði í stórum stökkum á margra ára millibili. Ég held að það sé frekar galli á kerfinu. — Ég ætla að segja þetta gott í bili. Ég man ekki hvað það var sem ég ætlaði að koma að hérna undir lokin.