154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[01:31]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Forseti. Mér þykir mjög gleðilegt að við séum að ræða þetta mál undir þinglok. Þetta er risastórt hagsmunamál fyrir unga foreldra og ég fagna því mjög að það komist á dagskrá fyrir þinglok. Um miðja nótt þegar mæður eru kannski að vakna til að gefa þá vona ég að einhverjir séu að hlusta og heyri að hér erum við að berjast fyrir bættum kjörum ungra barnafjölskyldna. Eins og hv. framsögumaður nefndi þá var það aðgerð ríkisstjórnarinnar við kjarasamningsgerð að mæta ungum barnafjölskyldum með hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi. Þetta hefur verið áherslumál hjá Sjálfstæðisflokknum um árabil. Þar sem þakið hefur ekki hækkað síðan 2019, þrátt fyrir miklar launa- og verðlagshækkanir, þá er þetta gott og stórt kref sem við erum að stíga.

Í 1. umræðu áttum við góð samtöl í þingsalnum og mér fannst vera gott stef í umræðunni. Við vorum um margt sammála á milli flokka um hverjar áherslurnar væru og hvernig við sæjum framtíðarfyrirkomulagið um þetta góða kerfi okkar. Ég sé það á frumvarpinu að eftir þá umræðu voru gerðar virkilega góðar breytingar sem ég ætla að nýta tækifærið og þakka nefndinni fyrir að hafa tekið tillit til. Það er þá sérstaklega hvað varðar hækkun á greiðslunum frá 1. apríl, að þær muni eiga við um alla sem eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, óháð því hvenær barn fæðist. Það er mikilvægt, nauðsynlegt, sanngjarnt og réttlátt að fara þá leið. Því fagna ég því að nefndin hafi sammælst um þá breytingu. Ég er líka ánægð með að það var ákveðið að breyta svolítið uppsetningunni á frumvarpinu. Þetta var fyrst sett fram sem ákvæði til bráðabirgða og mér fannst ekki góður bragur á því þannig að ég fagna því að útfærslan sé sú, eins og ég lagði til í 1. umræðu, að breytingin yrði gerð á 1. mgr. 24. gr. Það er hreinlegra og lagatæknilega fagurfræðilega betra að mínu mati. En það er kannski bara einhver nördaskapur.

Umræðan á síðustu misserum og dögum um umgjörð okkar um ungt barnafólk hefur vissulega sprungið út og það er sterkum baráttukonum svo mikið að þakka. Það skiptir máli að rödd ungra kvenna sem standa í barneignum — og ég segi kvenna af því að ég hef reyndar frekar lítið heyrt af röddum karlmanna þó svo að ég viti að þeir eru að glíma við nákvæmlega sama kerfi og konurnar. Það hefur verið svo dýrmætt á undanförnum dögum að upplifa sterka rödd í þá átt að samfélag okkar taki betur utan um ungar barnafjölskyldur. Það er svo margt sem bendir til þess að samfélagið sé að þróast. Áður var sagt að það þyrfti heilt þorp til að ala upp barn og við sjáum að þróunin er kannski að verða sú að þorpið er orðið þrengri hópur, kannski bara mamma, pabbi og barn. Það er ekki lengur þessi stórfjölskylda sem heldur utan um alla. Þess vegna erum við einhvern veginn að reyna að stíga inn í og hafa umgjörðina utan um barnafólk skýrari og betri.

Ríkisstjórnin hefur vissulega tekið stór og góð skref í átt að því að bæta þessa umgjörð, t.d. með því að gera umbyltingu á barnabótakerfinu. Það bættust við 3.000 fjölskyldur sem hafa réttindi í barnabótakerfinu fyrir tveimur árum sem var mjög vel. Eins og hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir nefndi þá lengdum við líka fæðingarorlofið sem var líka mjög mikilvægt. Núna erum við að stíga það skref að hækka hámarkið á þakinu á greiðslum úr sjóðnum. Það er gott og vel en það er svo önnur hlið á málaflokknum sem er á ábyrgð sveitarfélaganna, sem eru dagvistunarúrræðin. Maður finnur það svolítið mikið í umræðunni hvar hitinn og þunginn er af áhyggjum foreldra og hann er svolítið þar. Því vona ég að við náum að láta boltann rúlla. Kannski er eitthvað sem við getum gert hér á Alþingi til að styðja betur við sveitarfélögin á sinni vegferð við að styrkja leikskólastigið. Það má t.d. skoða hvort hægt sé að einfalda reglur til að hleypa fjölbreyttari rekstrarformum að á leikskólastiginu. Einkareknir leikskólar með aðra hugmyndafræði eru að blómstra og kannski getum við gert eitthvað til að liðka fyrir þeim, einfalda kannski það regluverk. Það er hugmynd sem mætti skoða.

Svo er reyndar annað sem ég tel að við gætum gert, sem snýr bara að kerfinu og því mikla tekjutapi sem foreldrar verða því miður fyrir í fæðingarorlofi. Það snýr að 80%-reglunni í lögunum um fæðingarorlof sem ég nefndi líka í 1. umræðu og hefði viljað koma inn í þetta frumvarp, að hún yrði afnumin. Sú barátta þarf bara að halda áfram. Mér finnst ekki réttlætanleg regla að þegar þú ert með þak á hámarki á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sért þú samt alltaf með þann varnagla að þú getir einungis fengið 80% af laununum. Þú verður alltaf fyrir 20% tekjutapi, sama hvað þakið er. Það finnst mér óréttlátt og það bitnar einna helst á þeim sem hafa lægstu tekjurnar. Þar af leiðandi finnst mér það bara vera vont að við séum ekki búin að ná að taka það skref að afnema þessa reglu.

Svo eru ýmsir aðrir vankantar á kerfinu sem má sníða af og fínpússa. Það má skoða sérstaklega aðstæður fjölbura, þar sem konur eignast fleiri en eitt barn í einu. Lengra orlof fylgir ekki hverju einasta barni. Þú færð bara litla viðbót með barni númer tvö og svipaða viðbót með barni númer þrjú en það er aldrei horft á það að barnið á sín réttindi, 12 mánuði, heldur er einhvern veginn eins og það skipti ekki máli að það sé sá einstaklingur sem á rétt á þeim tíma. Þetta snýst einhvern veginn meira um foreldrana. Ég er ekki alveg búin að formúlera hvernig við getum náð betur utan um þetta en þetta er augljóst vandamál sem ég heyri mikið í mín eyru.

Mig langaði að vera rosalega jákvæð í þessari umræðu og tala ekki bara um vandamálin við kerfið heldur um það góða sem við höfum gert og erum að gera, af því að þetta er jákvætt, þetta er gott skref, þetta skiptir máli. Það skiptir máli að þessi barátta um að hækkunina á greiðslunum frá 1. apríl 2024 eigi við um alla sem eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Það er svo mín persónulega skoðun að hækkanir í framtíðinni eigi að taka til allra réttinda sem foreldrar kunna að eiga inni hjá sjóðnum. Baráttan fyrir því réttlæti, sem ég tel að sé sanngjarnt og eðlilegt, mun halda áfram. Og þó svo að við höfum haft kerfið á einhvern annan hátt í fortíðinni þýðir það ekki að við getum ekki breytt því hér. Ég held að það sé algjörlega tímabært að við skoðum það til hlítar og ég vona að okkur lánist að gera það strax í haust. Þessi umræða mun ekki hverfa. Hvaða umræða mun koma upp næstu áramót? Nákvæmlega þessi: Af hverju er verið að mismuna börnum eftir fæðingardegi? Það er mismunun. Það er óheppilegt. Við erum ekki að sjá þessa útfærslu þegar við erum að hækka í öðrum kerfum sem við erum að útdeila fjármunum úr. Ég tel að við hefðum átt að grípa inn í, þar sem við vitum að þetta verður umræðan, og tryggja jafnrétti meðal barna, hvort sem þau fæðast 31. desember eða 1. janúar — þó svo að það sé alltaf gaman að vera jólabarn.

Umræðan um stöðu ungra barnafjölskyldna, eins og ég kom stuttlega inn á áðan, hefur kannski verið dálítið átakanleg en ég vildi þakka hana. Þessi breyting er góð. Ég tel líka að það hafi verið til bóta að hækkunin var lögfest. Í frumvarpi hæstv. ráðherra var talað um að það yrði útfært í reglugerð en ég held að það sé eðlilegt að það sé bara skýrt að þetta sé ekki bara loforð sem stjórnvöld eru að gefa heldur ætli þau að sýna að þau standi með því og geri það í verki. Þannig að það er mjög vel.

Eins og ég segi þá langar mig líka að boltinn fari að rúlla á sveitarstjórnarstiginu, að dagvistunarmálin komist á dagskrá, að það heyri ekki til undantekninga á Íslandi að börn komist í dagvistunarúrræði 12 mánaða, eins og það er í dag, og að sveitarfélög sinni þessum málaflokki af þeirri natni sem okkur hefur lánast að gera hér á Alþingi og að þær ungu fjölskyldur sem eru í baráttunni í dag sjái ljósið og að fæðingartíðni fari mögulega aftur upp á við. Það er hagsmunamál okkar allra að við höldum áfram að fjölga okkur. Ég veit að það skiptir máli fyrir framtíðahagsæld. Ég held að við eigum mikla möguleika á að byggja áfram á því góða kerfi sem við höfum búið til. Þessar breytingar eru til þess fallnar að treysta fjárhagslegt öryggi ungra fjölskyldna og því fagna ég alveg sérstaklega og fagna því að við munum ganga til atkvæða á morgun um þetta stórgóða mál.