fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2024 frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin fjallaði um málið eftir að því var vísað til hennar 7. maí sl. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kom á fund nefndarinnar ásamt fulltrúum ráðuneytisins. Nefndin kallaði ekki eftir umsögnum um málið en efni þess snýr eingöngu að aðkomu ríkissjóðs að kjarasamningum á almennum markaði sem undirritaðir voru í byrjun marsmánaðar. Þetta er þriðja frumvarp ársins til fjáraukalaga en áður hafa tvö frumvörp til fjáraukalaga verið samþykkt sem bæði tóku til fjárútláta ríkissjóðs í tengslum við eldsumbrotin í og við Grindavíkurbæ og það óvissuástand sem þar hefur skapast.
Í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum markaði gáfu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga út yfirlýsingu um aðgerðir til að styðja við markmið samninganna. Á tímabilinu 2025–2029 nema aðgerðirnar samtals um 83,2 milljörðum kr. og í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun á þskj. 1501 er gert ráð fyrir þessum fjárhæðum í útgjöldum ríkissjóðs.
Yfirlýsingin er ófjármögnuð vegna ársins 2024 og er frumvarpinu ætlað að bæta úr því.
Gerðar eru tillögur um samtals 12,9 ma. kr. auknar útgjaldaheimildir árið 2024 sem sundurliðast í tíu liðum. Til samanburðar eru birtar fjárhæðir fyrir árin 2025 og 2026 í töflu á bls. í nefndarálitinu sem gert er ráð fyrir í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029.
Fram kemur að vaxtastuðningurinn tekur aðeins til þessa árs en barnabætur hækka árið 2025 þar sem þær taka þá til ársins í heild. Sama á við um hækkun húsnæðisbóta og hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Aukin stofnframlög til húsnæðismála koma til árin 2026 og 2027.
Tillögur frumvarpsins um hækkun gjaldaheimilda tengjast í flestum tilfellum samþykkt annarra frumvarpa. Vaxtastuðningur til heimila og hækkun barnabóta hafa nú þegar verið samþykkt með breytingu á lögum um tekjuskatt í 918. máli. Hækkun húsnæðisbóta tengist 1075. máli um breytingu á lögum húsnæðisbætur og hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði er að finna í 910. máli. Einnig er í 1114. máli, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, kveðið á um gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram endurmat á afkomu ársins. Í frumvarpinu sjálfu er hvorki gert ráð fyrir breytingum á tekjuhlið fjárlaga né endurmati til lækkunar útgjalda og eru því áætluð heildargjöld ekki þau sömu og í fjárlögum að viðbættum fjáraukalögum.
Heildartekjur eru áætlaðar um 11 milljörðum kr. hærri en í fjárlögum. Munar þar mestu um 10 milljarða kr. hærri arðgreiðslu Landsvirkjunar og endurmat á umfangi afskrifta skattkrafna í samræmi við breytta aðferðafræði Fjársýslu ríkisins.
Heildargjöld eru nú áætluð um 10 milljörðum kr. hærri en í fjárlögum. Tillögur í frumvarpi þessu koma til hækkunar en á móti vegur að sökum lægri verðbólgu er nú gert ráð fyrir að gjaldfærðar verðbætur verði um 3 milljörðum kr. lægri en í áætlun fjárlaga.
Í heildina hækka því bæði tekjur og gjöld um svipaða fjárhæð og heildarafkoman er því áætluð nær óbreytt frá fjárlögum, eða neikvæð um 50 milljarða en frumjöfnuður er áætlaður jákvæður um 21 milljarð kr.
Gerð er tillaga um að veitt verði 225 millj. kr. heimild á málaflokk 29.40, Annar stuðningur við fjölskyldur og börn vegna skólamáltíða, til viðbótar við þær 1.500 millj. kr. sem eru nú þegar til staðar í frumvarpinu. Breytingin skýrist af endurmati á því hver hlutfallsleg skipting kostnaðar á milli vor- og haustannar er vegna skólamáltíða. Kostnaður vegna skólamáltíða er áætlaður 3.750 millj. kr. á einu skólaári og skiptist þannig að 1.725 millj. kr., eða 46%, falla til á haustönn 2024 og 2.025 millj. kr., eða 54%, á vorönn 2025.
Gert er ráð fyrir að fjárheimildum í 1. og 2. gr. frumvarpsins verði breytt í samræmi við þessa tillögu.
Efni frumvarpsins er þannig að um er að ræða sérstakan vaxtastuðning til heimila með íbúðalán upp á 6 milljarða, barnabætur upp á 3 milljarða, gjaldfrjálsar skólamáltíðir upp á 1,5 milljarð, plús þessi hækkun sem ég fór yfir áðan, hækkun húsnæðisbóta upp á 1, 25 milljarða, hækkun hámarksgreiðslu Fæðingarorlofssjóðs 600 millj. kr., og ég mun koma að því betur á eftir með breytingartillögu sem verður lögð fram samhliða þessu frumvarpi sem mun hækka þessa tölu, gjaldfærður ríkisstuðningur vegna hlutdeildarlána upp á 320 millj. kr., framlag vegna vinnustaðanámssjóðs 150 milljónir, bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu 50 milljónir og hækkun hámarksábyrgðar úr Ábyrgðarsjóði launa 49 milljónir. Samtals eru þetta 12.919 milljónir sem þessi fjárauki hljóðar upp á.
Eins og ég kom inn á áðan verður lögð fram breytingartillaga við þennan fjárauka sem er upp á 350 milljónir og greinargerðin hljóðar þannig:
„Tillaga þessi er gerð í kjölfar tillögu meiri hluta velferðarnefndar um breytingu á þingmáli 910 um að hækkun á hámarksgreiðslum vegna fæðingarorlofs taki til allra þeirra foreldra sem eiga ótekið fæðingarorlof miðað við 1. apríl sl. Í forsendum frumvarpsins var miðað við að hámarkið tæki aðeins til barna sem fæðast frá og með 1. apríl. Með þessari breytingartillögu er gert ráð fyrir að útgjöldin geti hækkað um 350 m.kr. til viðbótar við þær 600 m.kr. sem fram koma í frumvarpinu þar sem hækkunin tekur bæði til þeirra sem eiga ótekið fæðingarorlof sem og til þeirra foreldra sem eignast barn frá og með 1. apríl sl.“
Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta nefndarálit. Það liggur hér fyrir. Ég vil bara í lokin þakka fjárlaganefnd fyrir vinnunna og samstarfið í þessari umræðu um þennan fjárauka og í nefndinni.