154. löggjafarþing — 129. fundur,  22. júní 2024.

Evrópska efnahagssvæðið.

1076. mál
[02:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá meiri hluta hv. utanríkismálanefndar.

Með frumvarpinu sem hér liggur fyrir eru lagðar til breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, í tengslum við samning EFTA-ríkjanna innan EES við Evrópusambandið um greiðslur í uppbyggingarsjóð EES vegna nýs tímabils, frá 1. maí 2021 til 30. apríl 2028. Er samningurinn fyrir næsta tímabil niðurstaða langra samningaviðræðna eins og rakið er í greinargerð með frumvarpinu.

Samningarnir byggjast á ákvæðum EES-samningsins en EFTA-ríkin hafa innan EES skuldbundið sig til að inna af hendi tímabundin fjárframlög til tiltekinna ríkja innan ESB til að draga úr efnahagslegu og félagslegu misræmi á milli svæða sinna. Þessi fjárframlög eru nefnd uppbyggingarsjóður EES og deila EFTA-ríkin innan EES kostnaðinum hlutfallslega á milli sín á grundvelli þjóðarframleiðslu. Af því leiðir að framlög Íslands eru mikill minni hluti framlaga sjóðsins. Auk þess má nefna að áhugi Íslendinga á sjóðnum hefur farið stigvaxandi og tókum við þátt í á fimmta hundrað verkefna og fengum úthlutað úr sjóðnum samtals á annan milljarð króna. Vonir standa til þess að þessi áhugi muni aukast enn frekar, m.a. vegna opnun sendiráðs Íslands í Varsjá.

Samhliða viðræðunum um uppbyggingarsjóðinn samdi Ísland við ESB um tímabundna tollfrjálsa kvóta vegna innflutnings á sjávarafurðum til sambandsins á viðkomandi sjóðstímabili.

Sjálf hef ég ekki dregið dul á það, virðulegi forseti, að samningar Íslands við ESB um tollfrelsi fyrir íslenskar sjávarafurðir séu mikil vonbrigði. Það er auðvitað reginhneyksli að ESB geri betri tollfrelsissamninga við lönd sem standa utan EES. Slíkir samningar eru í mikilli mótsögn við þétt og náið samstarf EES-ríkjanna, ekki síst á sviði viðskipta. Þessum umkvörtunum hef ég margsinnis komið á framfæri við fulltrúa ESB á fundum mínum með þeim. Þeir samningar sem náðust nú fyrir Íslands hönd um nýja tollkvóta eru þó bæði umfangsmeiri og skapa umtalsvert betri möguleika en fyrri samningar til þess að tollkvótarnir nýtist útflytjendum íslenskra sjávarafurða til fulls.

Virðulegi forseti. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá utanríkisráðuneyti auk þess sem þrjú minnisblöð bárust frá sama ráðuneyti á meðan nefndin fjallaði um málið.

Þegar frumvarp þetta var lagt fyrir Alþingi var hvorki búið að undirrita samninginn um greiðslur í sjóðinn né um tímabundna tollfrjálsa kvóta en samningaviðræður voru þá, eins og ég hef þegar rakið, langar og strangar. Voru væntingar um að aðildarríkin myndu samþykkja samningana fljótlega eftir framlagningu frumvarpsins og í kjölfarið yrði hægt að undirrita þá. Samþykktarferlið innan ráðs ESB dróst hins vegar, en eins og nánar er rakið í greinargerð má segja að efnislega sé búið að ganga frá samningunum en út af standa formsatriði áður en hægt er að undirrita hann. Í ljósi þess að þessu ferli er lokið innan ESB án andmæla telur meiri hlutinn að rétt sé að samþykkja frumvarpið með breytingum. Því ræður ekki síst áhersla Íslands á að tryggja að samningurinn um tollkvóta geti sem fyrst koma til framkvæmda til hagsbóta fyrir útflytjendur íslenskra sjávarafurða.

Þar sem ekki er vitað með vissu hvenær umræddur samningur verður undirritaður formlega leggur meiri hlutinn til að frumvarpinu verði breytt þannig að gildistaka laganna, sem kveðið er á um í 4. gr. frumvarpsins, verði bundin við auglýsingu utanríkisráðherra þar um í A-deild Stjórnartíðinda. Fordæmi eru fyrir slíku skilyrði.

Virðulegi forseti. Með hliðsjón af framansögðu leggur meiri hluti utanríkismálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem er að finna í nefndarálitinu.

Undir það rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Bjarni Jónsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jón Gunnarsson, Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.