154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[10:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Staða ríkisfjármála er sterk. Staða efnahagsmála er sterk í megindráttum á Íslandi í dag. Frumjöfnuður hefur náðst og í þessari fjármálaáætlun er reiknað með að heildarjöfnuður náist á næstu árum. Það sem meiri hlutinn vill leggja áherslu á í fjárlaganefnd er að taka upp endurmat útgjalda með markvissari hætti í störfum nefndarinnar í ljósi þróunar útgjalda undanfarna áratugi. Þá sammælist meiri hlutinn um áherslu á verkefni og endurmat útgjalda. Á undanförnum árum hefur verið vaxandi áhersla á að ná fram skilvirkni og auka framleiðni innan ríkiskerfisins. Einn veikleiki rammafjárlagagerðarinnar er sú mikla áhersla sem er á þær fjárhæðir sem eru breytilegar milli ára án þess að grunnfjárveitingar, þær sem þegar eru innan ramma, séu endurskoðaðar. Á þetta leggur meiri hluti fjárlaganefndar áherslu á komandi vetri.