fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Fjármálaáætlun 2025–2029 er áhugavert plagg að mörgu leyti. Það sem vekur sérstakan áhuga er hversu illa fjármögnuð ríkisfjármálin eru til næstu ára. Hér virðist ríkisstjórnin ekki ætla að standa við það. Og ég vek athygli á því að það er eiginlega aldrei talað um hvernig á að fjármagna hlutina. Það er bara verið að dæla út peningum endalaust á verðbólgutímum þegar stýrivextir eru 9,25%. Varðandi fjármögnun kjarasamninganna t.d. þá á að ná í 10 milljarða til Landsvirkjunar í ár, úr bankabókinni þar, og setja út í samfélagið. Fjármögnun kjarasamninga á næsta ári á að vera þannig að öryrkjar eiga að taka það á sig með frestun nýs örorkukerfis til 1. september 2025, um átta mánuði; 10 milljarðar þar. Það eru atriði líka í þessu sem munu koma til framkvæmda á næsta kjörtímabili og þá verður þessi ríkisstjórn ekki við völd, svo mikið er víst. (Forseti hringir.) Breytingartillögur Flokks fólksins miða að því að auka tekjur og styðja við öryrkja og fatlaða í þessu landi.