fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Þessi fjármálaáætlun sýnir og sannar enn og aftur að ríkisstjórnin hefur staðið gríðarlega vel að málum á síðustu árum, farið í gegnum öldusjó Covid-hamfara og jarðhræringa á Reykjanesi en getur engu að síður birt fjármálaáætlun til fimm ára þar sem meginmarkmiðið er að ná niður verðbólgu og vöxtum, slá örlítið á væntingar um að það sé endilega best að halda áfram útgjaldaaukningu. Útgjaldaaukningin verður minni á næstu fimm árum heldur en tekjuvöxturinn. Þannig náum við heildarjöfnuði, náum sem sagt þessari mjúku lendingu. Á sama tíma sjáum við að sennilega hafa Íslendingar aldrei verið með hærri landsframleiðslu per mann. Við erum með lífskjör eins og þau lönd í Evrópu sem hvað best standa og allir aðrir mælikvarðar eru í þá áttina. Ég vil þakka nefndinni, (Forseti hringir.) formanni nefndarinnar og reyndar þinginu öllu fyrir góða vinnu. Ég hlakka til að vinna eftir þessari fjármálaáætlun.