fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Í 1. gr. laga um opinber fjármál segir að markmið laganna sé að stuðla að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála en hér í dag heyrir maður að sumir geta ekki stutt fimm ára áætlun okkar vegna þess að það vantar peninga fyrir sendiráðið á Spáni. Við verðum að viðhalda getu til þess að ræða um það sem á að ræða um þegar við ræðum um fjármálaáætlun, fimm ára áætlunina. Hvernig eru tekjurnar að þróast og hvernig eru gjaldalínurnar að þróast? Í þessari áætlun sýnum við að við getum náð að afgangi án þess að taka meira af verðmætasköpuninni í landinu. Menn geta fjallað um einstök illa fjármögnuð verkefni en fjármálaáætlun er ekki ætlað að tryggja fjárheimildirnar. Þær koma síðan í fjárlögum viðkomandi árs. Raunverulegi mælikvarðinn á það hvernig okkur gengur í opinberum fjármálum og í hagstjórn almennt, efnahagsstjórninni, er staða heimilanna og nýjustu tölurnar eru þær að við erum að hækka á mælikvarða þess hversu mikil verðmæti eru sköpuð á mann á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir (Forseti hringir.) og kaupmáttur á fyrsta ársfjórðungi er tekinn að vaxa að nýju. Kaupmáttur á Íslandi (Forseti hringir.) er með því hæsta sem gerist.