154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[10:17]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Sú fjármálaáætlun sem við leggjum hér fram er að mínu mati mjög ábyrgt plagg og talar inn í þá stefnu sem við höfum markað okkur síðustu árin. Við erum að leggja áherslu á og forgangsraða velferðarmálum og heilbrigðismálum, sem fá langmesta hækkun af öllum liðum í þessari áætlun, og það í raun og veru styður það sem við höfum haldið fram hér undanfarin misseri, að staða ríkisfjármála er sterk og sama út frá hvaða vinkli á það er horft. Mig langar að þakka fyrir þann stuðning sem ég finn hjá hv. þingmönnum varðandi þær breytingartillögur sem nefndin kom með, sem eru að mínu viti mjög góðar og þarfar. Varðandi fjármögnun á þeim tillögum (Forseti hringir.) þá vil ég benda á að það er 0,04% af fjárlögum, óverulegt og þarf ekki að gera sérstakar ráðstafanir til að bregðast við þeim tillögum.