fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Í framhaldi af orðum forsætisráðherra um að hér eigi að ræða heildarmyndina en ekki einstakar aðgerðir og í framhaldi af orðum fjármálaráðherra um mjúka lendingu þá er ástæða til að minna á það hver staðan er á Íslandi. Í grunninn hafa þessir herrar í dag eitt verkefni og það er verðbólga og háir vextir. Verðbólga er há á Íslandi, hærri en annars staðar. Vextir á Íslandi eru háir og hærri en annars staðar. Og hvað sjáum við vera að gerast sem afleiðingu af þessari kyrrstöðustjórn sem hér er við völd? Samkeppnishæfni Íslands dalar. Á flestum sviðum stendur Ísland verr að vígi en áður var. Við sjáum það síðast í leiðara Morgunblaðsins í morgun þar sem talað er um skattastefnu. Það er talað um alþjóðlegar fjárfestingar, það er talað um alþjóðaviðskipti. Hvað segir Morgunblaðið? Þetta er afleiðing af því að hér ríkir kyrrstaða. Það er kyrrstaða í ríkisstjórninni allri nema þegar það gerist með reglubundnum hætti að menn skipta um ráðherrastól. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)