fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Hér vill fólk ræða stóru myndina. Stóra myndin er sú að við erum að koma út úr níu ára hallarekstri. Við erum að koma inn í þá stöðu að 27 milljarða aðhald er óútfært í þessari fjármálaáætlun. Skuldastöðunni er reddað með 125 milljarða kr. eignasölu, þar af 100 milljörðum af sölu banka sem hæstv. forsætisráðherra hefur áður sagt sig sagt af sér embætti vegna klúðurs á, 25 milljarðar þar af óútfært. Það er engin pólitísk lína eða skipulag í þessari áætlun. Við þetta vil ég bæta að það er orðið ansi algengt stef hér, sérstaklega hjá Framsóknarmönnum, að tala um að milljarður eða 10 milljarðar hér og þar séu ekki neitt í stóru mynd 1.500 milljarða fjárlaga. Það vita allir sem eitthvert vit hafa á opinberum fjármálum að verðbólga og vaxtastig og þensla ræðst á jaðrinum. Og að láta eins og meðferð opinberra fjármála, (Forseti hringir.) á 500 milljónum hér og þar, skipti ekki máli og það þurfi ekki að leita að fjármögnun er í minnsta lagi óábyrgt.