fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Það er mikil ósanngirni að tala um halla á ríkissjóði miðað við hvað hefur gengið yfir í heil fimm ár, endalaus áföll og þau eru margs konar. Það vita allir hvað ég á við. Það er líka ósanngjarnt að tala um að samkeppnishæfni Íslands hafi fallið á lista IMT-háskólans í Sviss sem var birt núna í vikunni eins og það hafi verið hinn stóri sannleikur, þegar Ísland hefur bætt stöðu sína um tíu sæti. (Gripið fram í.) Það fór úr sæti 25 í sæti 16 í fyrra og hefur færst aftur um eitt sæti, í það 17. núna. Sannleikurinn er sá að samkeppnisstaða Íslands hefur stórbatnað á undanförnum áratug. Það er þá rétt að hafa það eftir. Það geta allir lesið í hinu ágæta Morgunblaði í vikunni sem hv. þingmaður vitnaði í. En rétt skal vera rétt.