154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[10:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við skulum horfa á heildarmyndina, segir hæstv. forsætisráðherra. Með leyfi forseta:

„Landspítali hefur síðustu ár skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu en vert er að hafa í huga að ákveðnum lykilþáttum starfseminnar hefur ekki verið sinnt sem skyldi.“

Landspítalinn bendir okkur á að það vantar rúmlega 2,5 milljarða. Það eru ekki smámunir í rekstri Landspítalans. Þó að hann sé með ansi mikið af fjármunum hafa 2,5 milljarðar áhrif. Það hefur svo mikil áhrif að það er ekki verið að sinna lykilþáttum starfseminnar. Það eru um 13 milljarðar sem vantar í rauninni í háskólakerfið til þess að það sé á pari við samanburðarlöndin, Norðurlöndin. Það eru 4,5 milljarðar sem vantar í umhverfis-, orku- og loftslagsmál vegna t.d. fráveitumála. Þetta er samkvæmt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu sjálfu. 13 milljarðar í háskólastigið, það er frá háskólaráðuneytinu sjálfu. (Forseti hringir.) Þetta er heildarmyndin. Lykilþáttum starfseminnar hefur ekki verið sinnt eins vel og ætti að gera.