fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Landsframleiðsla á Íslandi er 34% hærri en hjá Evrópusambandinu, skuldir ríkissjóðs eru að lækka, það náðust kjarasamningar og við erum að ná utan um stöðuna í Grindavík. Staðan er býsna góð á Íslandi. Við erum með háar þjóðartekjur, einar þær hæstu í heimi. Það er eins og sumir bara hafi ekki tekið eftir þessu, vilji ekki horfa á hversu vel gengur á Íslandi. En það er eitt sem er svolítið áhugavert. Ég veit stundum ekki hvort hér sé að fæðast stjórnmálaflokkur, sem er Samfylkingin, sem er orðinn hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Eða hvað? Hvar á að skera niður? Á ekki að klára kjarasamninga? Hvernig ætlið þið að gera þetta? Þegar kemur að stóru málunum, hvort sem það eru útlendingamálum eða hvað það er, þá skilar Samfylkingin bara auðu.