154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[10:25]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er nýtt og gamalt stef að okkur finnist að það vanti fjármuni til að gera betur hér og gera betur þar; byggja fleiri brýr og vegi, halda áfram að byggja upp heilbrigðisþjónustu, þétta velferðarnetið eins og við erum að gera á þessu þingi o.s.frv. Þetta er gamalt stef. En ég heyri það líka hérna reglulega í tengslum við fjármálaáætlun núna að fólki finnist að það vanti frekara fjármagn hingað og þangað. Þeir eru til hér í salnum sem telja að leiðin til þess að ná í þetta og gera enn betur sé að hækka skatta. Við höfum talað fyrir öðru. Á síðasta áratug hefur íslenska hagkerfið vaxið meira heldur en öll hagkerfin á Norðurlöndunum og ekki bara meira heldur en langtum meira. Við erum búin að hækka á undanförnum árum á lista yfir þær þjóðir sem framleiða hvað mest á mann með því að halda sköttum hóflegum. Þetta er stefnan fram á við. Þetta er stefna sem birtist í þessari fjármálaáætlun; að stækka kökuna, halda áfram að efla hagkerfið, standa með atvinnulífinu og heimilunum. Þá fáum við (Forseti hringir.) aðstöðu til þess að gera betur á þeim sviðum sem við ætlum að halda úti á vegum hins opinbera.