154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
1035. mál
Virðulegur forseti. Í c-lið er lagt til að hækkun framlaga á málefnasviði 27, örorka og málefni fatlaðs fólks, komi til framkvæmda frá og með 1. janúar 2025 en verði ekki frestað til 1. september líkt og ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. Til hvers? Til að fjármagna kjarasamninga. Það stendur á bls. 54 í fjármálaáætlun og 65. Ég hvet alla til að lesa þessar merkilegu blaðsíður. Það er með ólíkindum að öryrkjar séu að standa í þessu. Það er vel hægt að hækka grunninn frá áramótum. Ég segi já.