fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Í d-lið er lagt til að framlög á málefnasviði 31, húsnæðisstuðningur, hækki um 2 milljarða kr. á ársgrundvelli til að efla frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Það er skortur á íbúðarhúsnæði í landinu. Okkur er búið að fjölgað svo mikið að við verðum að fara að byggja og ríkisvaldið verður að fara að koma inn í þennan málaflokk miklu sterkara, líkt og það gerði 1964 með júnísamkomulaginu þegar hluti íslensku þjóðarinnar fór úr bröggunum og Breiðholtið var byggt. Það er kominn tími til að fara í svipaðar aðgerðir til að vinna á húsnæðisvandamálum þjóðarinnar.