ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Samfylkingin getur ekki stutt áframhaldandi sölu á Íslandsbanka undir forystu þessarar ríkisstjórnar. Sami ráðherra og sagði af sér vegna verulegra annmarka í tengslum við síðustu bankasölu veitir þessari ríkisstjórn forystu og síðasta sala er enn þá til skoðunar og rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu. Ég er ekki mótfallinn sölu á Íslandsbanka síðar meir en tímasetningar og traust skiptir máli, forseti. Umgjörðin skiptir máli, forseti. Það er meira í húfi en svo að það sé hægt að fara í gegn með slíka stóra ákvörðun undir þessum kringumstæðum. Það þarf nýja ríkisstjórn áður en þessi vegferð heldur áfram. Við munum greiða atkvæði gegn þessu máli.