154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[10:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það er ekki nóg að hafa bara pólitíska stefnu um að það eigi að selja Íslandsbanka, það verður að gera það vel. Málsmeðferð meiri hlutans í þessu máli, hvernig er tekið á móti umsögnum, hvernig umsögnum er svarað, hvernig farið er með ábendingar umsagnaraðila, það er ekki traustvekjandi. Eftir að búið er að klúðra tveimur sölum á Íslandsbanka nú þegar, fyrst vegna allt of lágs verðs og við þekkjum öll hvernig sagan á öðru söluferlinu var, þá er algjört lykilatriði að þetta sé vel gert. Erindi umsagnaraðila benda okkur á að það eru atriði í þessum lögum sem eru til þess gerð að búa til enn eitt klúður. Hvernig það verður — það er ekki og verður ekki eins og áður, það verður eitthvað nýtt en möguleikinn er tvímælalaust til staðar. (Forseti hringir.) Og að hlusta ekki á þær ábendingar er ekki traustvekjandi.